Innlent

Vonskuveður í kringum landið

MYND/365

Vonskuveður er á nær öl.lum miðum í kringum landið og eru aðeins um 150 fiskiskip skráð á sjó. Þar af liggja mörg í vari , til dæmis undir Grænuhlíð við Ísafjarðardjúp og inni á fjörðum bæði fyrir austan og vestan.

Þá vörpuðu tvö erlend flutningaskip ankerum skammt undan Þjórsárósum á Suðurströndinni í gærkvöldi til að bíða af sér veðrið þar, enda stóð vindur af landi. Ekki er vitað til að neitt skip hafi fengið á sig brotsjó í veðrinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×