Ekki brot á samningum 11. september 2007 18:42
Boðaðar aðgerðir Flugfreyjufélags Íslands eru brot á kjarasamningum segir forstjóri Icelandair. Ekki rétt segir formaður félagsins en á fjölmennum félagsfundi flugfreyja í gær var ákveðið að vinna ekki yfirvinnu. Fundurinn var haldinn vegna þess að Icelandair sagði mörgum flugfreyjum upp nýverið. Flugfreyjur eru fyrst og fremst öryggisverðir í flugvélum og mega ekki vera færri en fjórir öryggisverðir í vélum Icelandair, samkvæmt öryggisstöðlum Boeing verksmijanna. Flugfreyjuhópurinn er þétt skráður út mánuðinn þannig að engin má fofallast án þess að það hafi áhrif á flugáætlun félagsins. Því var ákveðið á fundinum að vinna ekki umfram það sem búið er að ákveða samkvæmt vinnuskrám. Jón karl Ólafsson, forstjóri Icelandair sagði í hádegisviðtali stöðvar tvö í dag það vera brot á friðarskyldu. Sigrún Jónsdóttir formaður flugfreyjufélags Íslands sagði í samtali við fréttastofu í dag að ekki væri rétt hjá forstjóranum að samþykkt fundarins í gær feli í sér brot á friðarskyldu. Hún sagði félagsmenn hafa ákveðið að vinna ekki umfram vinnuskyldu einkum vegna þess að álag á freyjur væri mikið. Félagsmenn hefðu ákveðið að funda með stjórn Icelandair til að leysa nokkur mál en enginn væri með hnefann á lofti enda stéttin verði seint sökuð um ósveigjanleika. Sigrún gat ekki sagt til um hvenær fundur með stjórninni yrði en veikindi innan stjórnar flugfreyjufélagsins hafa sett strik í reikninginn. Einhverjar tafir hafa orðið á flugi vegna aðgerða flugmanna og segir jón Karl aðgerðir þeirra og flugfreyja auðveldlega geta kostað Icelandair mikla peninga.
Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Fleiri fréttir Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Sjá meira