Íslendingar næst umburðalyndastir allra þjóða 11. september 2007 18:45
Íslendingar eru næst umburðarlyndastir allra vestrænna þjóða. Svíar eru umburðarlyndastir samkvæmt nýrri rannsókn sem unnin er af tveimur virtum háskólum, öðrum breskum og hinum áströlskum. Í könnun sem nýlega hefur verið kynnt leggja ástralskir og breskir vísindamenn áherslu á að ná fram afstöðu vestrænna þjóða til fyrirfram skilgreindra minnihlutahópa. Könnunin tengist vísindaritgerð sem unnin er af Vani K Borooah við háskólann í Ulster og John Mangan við háskólann í Queensland. Afstaðan er könnuð hjá 30 þúsund einstaklingum í rösklega tuttugu þjóðlöndum til fólks af öðrum kynþætti, til Gyðinga, til múslima, til innflytjenda og erlends verkafólks og til samkynhneigðra. Spurt var hvort viðkomandi kærði sig um einstakling úr ofangreindum hópum sem nágranna. Niðurstaðan er sú að Svíar hafa mest umburðarlyndi gagnvart þessum minnihlutahópum og Íslendingar koma þeim næstir. Þar á eftir koma Hollendingar og Kanadamenn. Bandaríski nýsköpunarsérfræðingurinn Richard Florida fullyrðir að umburðarlyndi sé einn veigamesti þátturinn í sköpunargáfunni og þetta skýri því að hluta hversu framarlega Íslendingar eru í nýsköpun. Hinir þættirnir sem verulegu máli skipta í nýsköpun eru tækni og hæfileikar. Svíar hafa mest umburðarlyndi gagnvart fólki af öðrum kynþætti og Ný-Sjálendingar koma þeim næstir. Þar á eftir eru Íslendingar en Ítalir reka lestina. Svíar standa líka minnst allra þjóða gegn múslimum en meira en 11% Íslendinga kæra sig ekki um múslima sem nágranna. Það vekur athygli að Norðmenn hafa næst minnst umburðarlyndi vestrænna þjóða gagnvart múslimum en Grikkir reka lestina að þessu leyti. Það er sjónarmunur á sjónarmiðum Íslendinga og Svía gagnavart erlendu vinnuafli og innflytjendum en Portúgalar hafa mest umburðarlyndi gagnvart slíku fólki í sínu landi. Norður-Írar kæra sig síst um innflytjendur ef marka má þessa könnun. Þrátt fyrir að ofbeldi virðist hafa aukist gegn samkynhneigðum hér þá eru Íslendingar í þriðja sæti yfir þá sem hafa mest umburðarlyndi gagnvart slíku fólki. Hollendingar og Svíar eru okkur fremri að þessu leytinu en meira en þriðjungur Norður-Íra vill ekki hafa samkynhneigða einstaklinga sem nágranna.
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira