Íslenskt vatn tilnefnt til verðlauna vegna sjálfbærni 11. september 2007 15:00 Stutt er síðan Jón Ólafsson tók skóflustungu að nýrri vatnsverksmiðju í Þorlákshöfn. MYND/Sunnlenska
Vatn frá Icelandic Glacial, sem er í eigu Jóns Ólafssonar, keppir í lokaúrslitum um þekktustu verðlaun sem veitt eru fyrir vatnsframleiðslu í heiminum. Verðlaunin nefnast BottledWaterWorld Awards og eftir því sem fram kemur í tilkynningu etur Icelandic Glacial kappi við Coca Cola og Danone, sem framleiðir hið fræga Evian-vatn, um verðlaunin. Þau keppa um verðlaun fyrir besta framlag í sjálfbærni en tilkynnt verður um sigurvegarann á alþjóðlegri ráðstefnu vatnsframleiðenda í Mexíkóborg á fimmtudag. Umhverfismál og sjálfbærni eru meginþemu ráðstefnunnar í Mexíkó að þessu sinni og nýtur þessi verðlaunaflokkur því sérstakrar athygli.„Þessi tilnefning er sérstaklega mikilvæg fyrir markaðssetningu okkar í Bandaríkjunum, sem er nýhafin. Það er ekki á hverjum degi sem lítið íslenskt vörumerki stendur jafnfætis risum á borð við Coca Cola og Danone, sem meðal annars framleiðir Evian, sem er þekktasti vatnsdrykkur í heimi, og eftir því er tekið. Gríðarleg umhverfisvakning á sér stað í þessum geira og þeir sem skara framúr í sjálfbærni, ekki síst hvað varðar losun gróðurhúsalofttegunda, vekja mikla athygli," er haft eftir Jóni Ólafssyni, stjórnarformanni Icelandic Water Holdings, sem framleiðir Icelandic Glacial. Eins og kunnugt er hyggst félagið reisa vatnsverksmiðju í Þorlákshöfn á næstu misserum og hlaut félagið í júní síðastliðnum vottun frá CarbonNeutral samtökunum í Bandaríkjunum fyrir áætlun um ráðstafanir til kolefnisjöfnunar. Þar á meðal er notkun vistvænna orkugjafa á borð við jarðvarma og rafmagn frá vatnsaflsvirkjunum í verksmiðjunni.
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Fleiri fréttir Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Sjá meira