Einungis átta prósent vilja leggja niður Íbúðalánasjóð 11. september 2007 12:16
Aðeins átta prósent fasteignakaupenda vilja að bankarnir taki alfarið við húsnæðislánum og að Íbúðalánasjóður verði lagður niður. Þetta kemur fram í nýrri könnun Capacent Gallup. Bankarnir hafa á undanförnum árum rennt hýru auga til fasteignalánamarkaðarins og viljað Íbúðalánasjóð feigan. Löngun þeirra hefur fengið hljómgrunn hjá sjálfstæðismönnum og var jafnvel ýjað að því í tíð fyrri ríkisstjórnar að kreppa hefði hlaupið í stjórnarsamstarfið vegna andstöðu Framsóknarmanna við breytingar á sjóðinum. Ný könnun Capacents sýnir að 82,5 prósent fólks sem hefur nýlega keypt húsnæði vill að Íbúðalánasjóður starfi áfram í óbreyttri mynd sem er sambærileg niðurstaða og úr síðustu könnun fyrir tæpu ári. 9,2 prósent telja að sjóðurinn eigi að vera heildsala. Þrír af hverjum fjórum fasteignakaupendum eru jákvæðir gagnvart Íbúðalánasjóði og aðeins 7 prósent eru neikvæðir. Flestir vilja að hámarkshlutfall lána sé 90 prósent af kaupverði en að meðaltali vildu menn að verðtryggð lán væru 81 prósent af kaupverði. Tæplega helmingur aðspurðra hafði tekið lán hjá Íbúðalánasjóði. Úrtak könnunarinnar var fólk sem keypti fasteign í febrúar til júní á þessu ári. Svarhlutfall var 56 prósent.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira