Innlent

HA hýsir nýja meistaranámsleið fyrir HV

Háskólinn á Akureyri og Háskólasetur Vestfjarða hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um að Háskólinn á Akureyri taki að sér að hýsa nýja námsleið Háskólaseturs Vestfjarða í haf- og strandsvæðastjórnun.

Fram kemur í tilkynningu frá Háskólasetri Vestfjarða að í þessu felist að nemendur verði formlega innritaðir í Háskólann á Akureyri og útskrifast með gráðu þaðan. Námið fer hins vegar að öllu leyti fram við Háskólasetur Vestfjarða á Ísafirði og verður að öllu leyti í umsjón Háskólasetursins. Háskólinn á Akureyri viðurkennir námið sem fullgilt meistaranám en það er forsenda þess að hægt sé að fjármagna námið.

Háskólasetrið hefur þróað Haf- og strandsvæðastjórnun undanfarna mánuði. Stefnt er að því að byrja haustið 2008 með 15 námsmönnum. Þá segir í tilkynningu frá Háskólasetrinu að viljayfirlýsingin, sem undirrituð var á laugardag, færi Háskólasetrið töluvert nærri markmiði sínu að verða Háskóli Hafsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×