Verulegar hækkanir á nýjum matseðlum 14. janúar 2007 16:00 Grillhúsið eitt fjölmargra veitingahúsa sem nú er að láta prenta nýja matseðla þar sem ný verð verða kynnt. Örn eigandi segir matarskattinn ekki ástæðuna heldur gríðarlegar verðhækkanir hjá byrgjum að undanförnu. „
Jájá, það er rétt. Ég er að láta prenta nýjan matseðil,” segir Örn Guðmundsson eigandi hins ágæta Grillhúss við Tryggvagötu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru veitinghús landsins mörg hver að láta prenta nýja matseðla, ekki til að kynna nýja rétti, heldur ný verð á gömlum og góðum réttum. Fullyrt er að þetta hangi saman við þá staðreynd að matarskattur lækkar 1. mars og veitingamenn að búa sig undir að hirða hýruna. Enda neytendur og launaþrælar eru því vanir að vera hlunnfarnir þegar opinberar aðgerðir standa fyrir dyrum ætlaðar til að bæta þeirra hag. Eru nefndar tölur upp í 15 prósenta hækkun á venjulegum réttum. Örn segir það alveg rétt, fjölmargir veitingamenn séu nú að láta prenta nýja matseðla, nánast yfir línuna. Í því skyni að kynna ný verð. En það sé af og frá að lækkandi matarskattur sé ástæðan. „Ég er að hækka um einhver fjögur til fimm prósent. En það er ekki vegna lækkunar á matarskatti. Þá mun ég lækka aftur. Ég hækkaði ekkert á síðasta ári. En árið 2006 hafa verðhækkanir dunið á mér. Gos og kjötvörur hafa hækkað gríðarlega og miklu meira en við höfum verið að hella út í verðlagið. Já, ef ég ætti að standa á núlli þyrfti ég að hækka um 15 prósent. En það getur maður ekki. Þá er maður búinn að vera.” Að sögn Arnar er hækkunin byrgjum að kenna. Og laun hafa stigið mikið. Erfitt er að fá fólk til vinnu og það vill fá vel borgað.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Fleiri fréttir Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Sjá meira