Unglingar hætta lífinu til að stelast í heitan pott í Spönginni 22. ágúst 2007 19:05
Líkamsræktarstöðin World Class er með stóran nuddpott á þaki verslunarmiðstöðvarinnar í Spönginni í Grafarvogi. Svo virðist sem potturinn sé orðinn býsna vinsæll griðastaður meðal unglinga í hverfinu, ekki meðan opið er, heldur í skjóli nætur. Miðað við hæð hússins er ljóst að unglingarnir leggja sig í verulega hættu við að komast upp á þak þess þar sem hinn girnilegi pottur er staðsettur. Lögreglan í Grafarvogi hafði hendur í blautu hári sextán ára gamallar stúlku í nótt sem hafði verið uppi á þaki; en þau sem voru að lauga sig með henni hurfu rennvot á harðahlaupum úti í nóttina. Stúlkunni var ekið heim til sín. Aðkoman hjá starfsmönnum Wold Class í morgun var ekki glæsileg en sígarettustubbar lágu á víð og dreif við pottinn. Þess þarf varla að geta að viðskiptavinir World Class liggja ekki undir grun en starfsmenn World Class sitja nú yfir myndbandsupptökum til að finna út hverjir hafa verið að gamna sér í pottinum að næturlagi og reykja þar vindlinga.
Mest lesið Sextán ára martröð strætóbílstjóra í Reykjanesbæ Innlent Krúttlegi jólamarkaðurinn í félagsheimilinu endaði á borði lögreglu Innlent „Við munum berjast fyrir því til síðasta dags að fá pabba aftur“ Innlent Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Innlent Fjórir látnir á Tenerife eftir að alda sópaði þeim úr saltvatnslaug Erlent Farþeginn enn í haldi lögreglu Innlent Langþráð verk í vegagerð bíða fram á næsta áratug Innlent Fólk farið að reykja kókaínið Innlent Bílstjórinn meðvitundarlaus þegar rútan lenti á biðskýlinu Erlent Tæplega tvö hundruð þúsund vottorð gefin út af læknum á ári Innlent Fleiri fréttir Fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnainnflutning Vatnshæðin aðeins lækkað í Skaftá „Við munum berjast fyrir því til síðasta dags að fá pabba aftur“ Borgarsögusafn gagnrýnir rangfærslur varðandi Holtsgötu 10 Krúttlegi jólamarkaðurinn í félagsheimilinu endaði á borði lögreglu Húsbrot og líkamsárás Tæplega tvö hundruð þúsund vottorð gefin út af læknum á ári Langþráð verk í vegagerð bíða fram á næsta áratug Farþeginn enn í haldi lögreglu Sextán ára martröð strætóbílstjóra í Reykjanesbæ Slökkvilið kallað út vegna ammoníakleka Ummæli Þórunnar dapurleg Margt sem gildir enn í samstarfi Íslands og Bandaríkjanna Fólk farið að reykja kókaínið Kókaínreykingar algengari, vonbrigði í vegagerð og háskaleg eftirför lögreglu Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Taldi brúðkaup í Keníu ekki telja og krefst ógildingar Slökktu eld á Stórhöfða Ráðherra bað skólameistara afsökunar sem klóra sér enn í kollinum Elsti Íslendingurinn er látinn Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Halla Bergþóra sækir um en ekki Páley Hafnarfjörður mátti ekki afturkalla ráðningu Óskars Steins Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Furðar sig á uppbyggingu við inngang þjóðgarðsins Grindvíkingar fái að velja hvar þeir kjósa „Auðvitað er forgangsröðun jarðganga vonbrigði fyrir mig“ „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Ekki búið að bera kennsl á þann sem ekið var á Uggur í læknum og samtöl við Norðurlönd nauðsynlegt Sjá meira