Ríkisendurskoðun skoði vatnsréttindasamning 22. ágúst 2007 16:02
Þingflokkur Vinstri - grænna hefur óskað eftir því við Ríkisendurskoðun að hún fari ofan í saumana á samningi íslenska ríkisins og Landsvirkjunar um yfirtöku vatnsréttinda í neðri hluta Þjórsár og kanni hvort sá gerningur fái staðist. Í samningnum kemur fram að Landsvirkjun hafi 15 ár til að biðja um virkjanaleyfi á þessum slóðum. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær var samkomulagið gert skömmu fyrir kosningar í vor, nánar tiltekið 9. maí. Forstjóri Landsvirkjunar og þrír ráðherrar, fjármálaráðherra, fyrrverandi iðnaðarráðherra og fyrrverandi landbúnaðarráðherra, undirrituðu samninginn án fyrirvara. Vinstri - græn benda á að samkomulagið sé undirritað þrem dögum fyrir kosningar án minnstu vitundar Alþingis, landeigenda, sveitastjórna á svæðinu eða almennings. Með því sé verulegum verðmætum afsalað úr hendi ríkisins til Landsvirkjunar án nokkurrar heimildar í lögum. Þá vakni óhjákvæmilega spurningar um slíka afhendingu til eins fyrirtækis sem nú á að heita að starfi í samkeppnisumhverfi. Hafa 15 ár til að sækja um virkjanaleyfi Fram kemur í samkomulaginu, sem sést hér að neðan, að framsalið sé í tengslum við áform Landsvirkjunar vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár en ríkið hefur verið eigandi 95 prósent þeirra vatnsréttinda Hvamms-, Holta- og Urriðafossvirkjana sem núverandi áætlanir miðist við. Markmið samningsins sé að tryggja skynsamlega og hagkvæma nýtingu vatnsréttindanna og að Landsvirkjun hafi fullnægjandi heimildir til að halda áfram undirbúningi fyrir virkjanirnar. Samkvæmt samkomulaginu yfirtekur Landsvirkjun tímabundið við nýtingarétti allra vatnsréttinda ríksins en hafi fyrirtækið ekki lagt fram beiðni um virkjanaleyfi í neðri hluta Þjórsár innan 15 ára sé ríkinu heimilt með einhliða yfirlýsingu að fella samkomulagið úr gildi og fá aftur vatnsréttindin. Landbúnaðarráðuneytið selur jörð vegna framkvæmda Enn fremur skuldbindur landbúnaðarráðuneytið sem forráðaaðili ríkisjarðarinnar Þjótanda í Flóahreppi sig til samningaviðræðna við Landsvirkjun um að hún fái jörðina í þágu fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda. Vinstri - græn benda á að þetta sé gert án heimildar í fjárlögum og án þess að jörðin hafi verið auglýst. Enn fremur kemur fram í samkomulagi Landsvirkjunar og ríkisins að ríkið og Landsvirkjun skuli eigi síðar við útgáfu virkjanaleyfis semja um hvað Landsvirkjun skuli greiða fyrir vatns- og landréttindin. Þá sé Landsvirkjun óheimilt að framselja réttindin. Endanlegur samningur um kaup á réttindunum skuli liggja fyrir innan 90 daga frá því að virkjanaleyfi er gefið út. Segja samkomulagið siðleysi „Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fordæmir þessi vinnubrögð og telur gerð samkomulagsins, með leynd rétt fyrir kosningar siðleysi og afar ólíklegt að það fái staðist í lagalegu tilliti. Þingflokkurinn hefur samþykkt að leita álits Ríkisendurskoðunar á þessum gerningi," segir í tilkynningu Vinstri grænna.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Lífið Fleiri fréttir Vill draga úr hvalveiðum en segir hendur sínar bundnar fyrir sumarið Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Sjá meira