Glitnir hyggur á landvinninga í jarðvarmaverkefnum í Bandaríkjunum 5. september 2007 15:54 MYND/E.Ól
Fjallað er um væntanlegar fjárfestingar Glitnis í jarðvarmaverkefnum í Bandaríkjunum í erlendum miðlum í dag. Fyrirtækið kynnti áætlanir sínar á blaðamannafundi í New York í dag þar sem ný skrifstofa þess var opnuð. Reuters-fréttastofan greinir frá því að Glitnir hyggist fjárfesta fyrir einn milljarð dollara, yfir 60 milljarða króna, í jarðvarmaverkefnum á næstu fimm árum og að félagið ætli að láta mikið að sér kveða þegar vægi grænnar orku eyskst í landinu. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Glitni stóð félagið fyrir ráðstefnu um orkumál í New York sem var fjölsótt. Meðal þeirra sem fluttu ávörp voru Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Alexander Kersner, aðstoðarorkumálaráðherra Bandaríkjanna. Hægt að sexfalda raforkusölu frá jarðvarmavirkjunum Þá kynnti Glitnir þær niðurstöður sérfræðinga bankans að unnt væri að sexfalda raforkusölu frá jarðvarmavirkjunum í Bandaríkjunum á ári, úr 1,8 milljörðum í 11 milljarða Bandaríkjadala á ári. Mögulegt væri að jarðvarmavirkjanir gætu annað 20 prósent af orkuþörf Kalíforníu, 60 prósent orkuþarfar Nevada og 30 prósent raforkuþarfar Hawaii. Enn fremur áætlar Glitnir að fjárfesta þurfi í nýjum verkefnum sem ljúka eigi á næstu fimm árum fyrir 620 milljarðar króna og að samanlögð fjárfestingarþörf á sviði jarðvarmanýtingar í Bandaríkjunum til ársins 2025 sé jafnvirði um 2.550 milljarða króna. Tími jarðvarmans kominn Fram kom í máli Árna Magnússonar, framkvæmdastjóra Orkusviðs Glitnis, að félagið hefði þegar fjármagnað þrjá samninga sem sneru að jarðvarmavirkjunum. Þá bætti hann við að Bandaríkin væru í forystu í þróun endurnýjanlegra orkugjafa og að tími jarðvarmans væri kominn, ekki aðeins í Bandaríkjunum heldur á heimsvísu. „Starfsstöð Glitnis í New York mun gegna hlutverki miðstöðvar í Norður-Ameríku, annars vegar fyrir sérfræðinga Glitnis á sviði jarðvarma og fjárfestinga og hins vegar fyrir fulltrúa bandarískra fyrirtækja sem vilja nýta þessi tækifæri," segir Árni.
Mest lesið Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Hleypti líklega óvart úr Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Pútín lætur sér fátt um finnast Erlent Fleiri fréttir Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Sjá meira