Vilja stöðva starfsemi fyrirtækja sem hunsa reglur vinnumarkaðarins 5. september 2007 20:00 Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands. MYND/GVA
Stöðva verður umsvifalaust starfsemi þeirra fyrirtækja sem ekki virða leikreglur íslensks vinnumarkaðar. Þetta kemur fram í ályktun sem miðstjórn Alþýðusambands Íslands samþykkti í dag. Forseti sambandsins segir þolinmæði gagnvart fyrirtækjum sem brjóta á rétti starfsmanna á þrotum. „Það er búið að gefa þessum fyrirtækjum marga fresti til að koma sínum málum í lag," sagði Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, í samtali við Vísi. „Þetta má ekki dragast lengur og það þarf að stöðva starfsemi þeirra fyrirtækja sem ekki virða leikreglurnar." Í ályktun miðstjórnar Alþýðusambands Íslands er seinagangur í þeim málefnum er snúa að réttindi erlendra starfsmanna harðlega gagnrýndur. Þar segir ennfremur að ítrekað hafi fyrirtæki komist upp með að svara ekki lögmætum tilmælum eftirlitsstofnana og trúnaðarmanna starfsmanna. Fyrirtæki komist upp með að endurráða starfsmenn og losa sig undan því að leggja fram umbeðin og tilskilin gögn yfir þann tíma sem liðinn er án frekari aðgerða Vinnumálastofnunar. Þá krefst miðstjórnin þess að starfsemi þeirra fyrirtækja sem staðin hafa verið að því að virða ekki launauppgjör og tryggingar starfsmanna í samræmi við leikreglur íslensks vinnumarkaðar verði umsvifalaust stöðvuð. Grétar bendir á þetta sé ekki nýuppgötvað vandamál en rútuslysið í Besstaðabrekku í Fljótsdal í lok ágústmánaðar þar sem tugir manna voru án réttinda hafi verið kornið sem fyllti mælinn. „Okkur sýnist að nú sé upp runnin sú stund að tekist verði á við þetta vandamál af mikilli festu og alvöru. Þolinmæði okkar gagnvart þessum fyrirtækjum er á þrotum."
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira