Viðskiptaráðherra væntanlega á Volvo 5. september 2007 13:19 Volvo eins og viðkiptaráðherra mun sennilegast kaupa. MYND/Sig.Jökull
Viðskiptaráðuneytið mun að öllum líkindum fjárfesta í forláta Volvo XC90 jeppa en eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 á dögunum ók viðskiptaráðherra um á óvistvænasta bílnum í ráðherraflotanum. Volvoinn er með díselvél og töluvert vistvænni en bensínhákurinn sem ráðherrann hefur ferðast í að undanförnu. Til þessa hefur ráðuneytið haft til umráða jeppa af gerðinni Mercedes Benz M350 sem áður tilheyrði Guðna Ágústssyni, fyrrverandi landbúnaðarráðherra. Miðað við upplýsingar á heimasíðu Orkusetursins blæs sá bíll 5,6 tonnum af koltvíssýringi út í andrúmsloftið á hverju ári miðað við 20 þúsund kílómetra akstur og meðalverð á eldsneyti eins og það er í dag. Volvoinn gerir betur, en hann sleppir aðeins út 4,8 tonnum. Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, mun líka spara ríkinu töluverðar upphæðir þegar litið er til eldsneytiseyðslu. Orkusetrið reiknar það út að eldsneytiskostnaður Volvósins sé rúmar 221 þúsund krónur á ári og er það tæpum 70 þúsund krónum lægri upphæð en reiknast á gamla bílinn, enda er uppgefin eldsneytiseyðsla um 1800 lítrar á ári en Bensinn er sagður eyða 2340 lítrum á ári, miðað við 20 þúsund kílómetra akstur á ári. Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, segir í samtali við Vísi að líklegast verði Volvóinn fyrir valinu þó ekki sé búið að kaupa hann enn. „Við höfum kannað marga bíla undanfarið og það lítur út fyrir að Volvo með díselvél verði fyrir valinu," segir Björgvin. Hann segir að verið sé að vinna í málinu, komast að samkomulagi um verð og þessháttar, en samkvæmt listaverði kostar Volvo XC90 um sex og hálfa milljón króna.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sjá meira