Innlent

Yfirhershöfðingi NATO ræðir við utanríkis- og forsætisráðherra

MYND/Daníel R.

John Craddock, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins, kemur í heimsókn hingað til lands í dag og fundar bæði með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu verður aðlögun Íslands að breyttu umhverfi í varnarmálum og þróun NATO til umræðu á fundunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×