Einkavæðing leikskóla ekki lausn á manneklu 7. september 2007 21:13 Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi. MYND/365
Einkavæðing leikskóla er ekki lausn á núverandi manneklu að mati Sigrúnar Elsu Smáradóttur, borgarfulltrúa og fulltrúa Samfylkingarinnar í leikskólaráði Reykjavíkur. Hún gagnrýnir ummæli formanns leikskólaráðs sem segist vilja kanna einkarekstur til að draga úr manneklu. „Við erum ekki á móti einkaskólum en það er fráleitt að halda það sé lausn á þessum vanda," segir Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi og fulltrúi Samfylkingarinnar í leikskólaráði Reykjavíkur, í samtali við Vísi. Í yfirlýsingu sem Sigrún Elsa sendi frá sér í kvöld gagnrýnir hún ummæli Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur, formanns leikskólaráðs Reykjavíkur, í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Þar kom fram að Þorbjörg vill skoða einkarekstur og láta kanna hvort atvinnurekendur vilja opna sérstaka leikskóla fyrir sína starfsmenn. Ennfremur vill hún skoða hvort borgin geti bætt kjör leikskólakennara. Í yfirlýsingu segir Sigrún að málflutningur Þorbjargar sé með hreinum ólíkundum og til marks um algert úrræðaleysi og uppgjöf vegna manneklu á leikskólum borgarinnar. Þá segir Sigrún ennfremur að það sé lúalegt af formanninum að nota núverandi ástand til að ýta hugmyndum um einkavæðingu í gegn. Sigrún bendir á að þrátt fyrir að um 150 starfsmenn vanti til starfa á leikskólum hafi starfsemi þeirri styrkst verulega á undanförnum árum. Árið 1992 hafi starfsmenn verið 875 talsins en í fyrra hafi þeir verið 1.510. Þá hefur dvalarstundum barna fjölgað úr 23.543 árið 1992 í 47.832 í fyrra. Sigrún segir það samfélagslega brýnt að leysa þennan vanda sem fyrst. „Við verðum að leita annarra leiða til að glíma við mannekluna. Til dæmis með beinum og óbeinum launahækkunum til handa leikskólakennurum."
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira