Innlent

Deila um skipulag Álftaness

Bæjarstjórinn á Álftanesi kom í veg fyrir að deiliskipulag bæjarins væri rætt á bæjarstjórnarfundum, segir oddviti minnihlutans í bænum. Bæjarstórinn segir minnihlutann enn í sárum eftir síðustu kosningar.

Nýr meirihluti tók við völdum á Álftanesi í síðustu kosningum eftir nauman sigur en aðeins munaði þremur atkvæðum á Á-lista og lista Sjálfstæðisflokksins.

Miklar deilur spruttu upp innan bæjarfélagsins árið 2005. Þá vildi Á-listi að íbúar fengju að kjósa um skipulag svæðisins en nú vilja sjálfstæðismenn slíka kosningu.

Þar með hafa deilur sprottið upp á nýjan leik innan bæjarfélagsins og sitt sýnist hverjum.

Meirihlutinn segir að hann hafi lofað því í kosningunum að fram myndi fara skipulagskeppni og að niðurstöðunum úr henni yrði hrint í framkvæmd. Minnihlutinn hafi haft nægan tíma til að gera athugasemdir við það en ekki gert.

Guðmundur G. Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Álftaness, segir Sigurð Magnússon bæjarstjóra hafa komið í veg fyrir að umræður um málið færu fram í bæjarstjórn. Búið sé að gera veigamiklar breytingar á því skipulagi sem vann keppnina og því eigi íbúar að fá að kjósa um nýja deiliskipulagið.

Sigurður segist ekki skilja hvers vegna þessi gagnrýni komi upp á yfirborðið núna. Það sé líklega vegna þess að menn séu enn í sárum eftir kosningaúrslitin í síðustu sveitarstjórnarkosningum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×