Innlent

Ekkert óeðlilegt við gjaldtöku bankanna

Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri banka og sparisjóða.
Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri banka og sparisjóða. MYND/Hari

Samkeppni milli banka og fjármálastofnana hér á landi hefur aldrei verið meiri en einmitt nú að sögn framkvæmdastjóra Sambands banka og sparisjóða. Hann segir ekkert óeðlilegt við gjaldtöku bankanna og segist fullviss um að starfshópur sem nú er starfandi á vegum viðskiptaráðherra komist að sömu niðurstöðu.

„Samkeppni á fjármálamarkaði hefur aldrei verið grimmari en einmitt núna," sagði Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri banka og sparisjóða, í samtali við Vísi. „Bankar leggja áherslu á að byggja upp langtímasamband við sína viðskiptavini og neytendur eru fljótir að greiða atkvæði með fótunum ef þeim finnst að verið sé að okra á þeim."

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, kynnti í morgun heildarstefnumótun á sviði neytendamála. Þar kom meðal annars fram að tryggja þurfi að sjálftaka í gjaldtöku fjármálastofnana með seðilgjöldum eða vanskilagjöldum eigi sér ekki stað. Þá segir ennfremur að efla þurfi samkeppni um þjónustu á þessu sviði til hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Guðjón bendir á að nú sé starfandi starfshópur á vegum viðskiptaráðherra sem hafi það verkefni að skoða meðal annars gjaldtöku fjármálafyrirtækja. Hópurinn á að skila niðurstöðu fyrir næstu áramót. „Ég er nokkuð viss um að niðurstaða þessa starfshóps muni leiða í ljós að hér á landi sé ekkert óeðlilegt við gjaldtöku banka og fjármálafyrirtækja."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×