Velferðarráð varar við áfengisfrumvarpi 24. október 2007 16:31 Björk Vilhelmsdóttir formaður Velferðarráðs
Velferðarráð Reykjavíkurborgar ályktaði í dag um áfengisfrumvarpið sem nú er til meðferðar á Alþingi. Ráðið varar við frumvarpinu segir rannsóknir sýni að þegar aðgegni að áfengi er aukið aukist neysla. Ályktun Velferðarráðs: Velferðarráð Reykjavíkurborgar varar við hugmyndum um aukið frelsi á áfengissölu sem lagt er til í nýju frumvarpi sem nú er til meðferðar á Alþingi Íslendinga. Samkvæmt upplýsingum Lýðheilsustöðvar sýna fjöldi rannsókna að aðeins lítil aukning á aðgengi að áfengi auki áfengisneyslu, þar á meðal ungs fólks. Rannsóknir í Svíþjóð, Finnlandi, Bandaríkjunum og Kanada sýna fram á margföldun á neyslu þegar aðgengi er aukið með afnámi einkasölu. Þessar rannsóknir hafa ekki verið hraktar og ekki hefur verið hafnað tengslum áfengis og félagslegs vanda. Þá leggur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin áherslu á að mikil áfengisneysla skaðar heilsu og samfélag og eykur á ýmsan hátt félagslegan vanda. Líklegt er að þeir sem muni nýta sér aukið aðgengi að áfengi séu þeir sem síst skyldi. Afleiðingarnar munu bitna á börnum og ungmennum sem nú þegar búa við erfið uppeldisskilyrði vegna áfengisneyslu forráðamanna sinna. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að sveitarfélög muni setja takmarkanir á sölu áfengis og hafa eftirlit með áfengisverslun. Flutningsmenn frumvarpsins hafa þó ekki rætt við Reykjavíkurborg um hvernig eigi að sinna þessum málum og taka á þeim vanda sem aukin áfengisneysla mun óhjákvæmilega leiða af sér. Engar ráðstafanir hafa verið kynntar sem geta unnið gegn aukinni áfengisneyslu. Þá hefur ekki verið talað um hvort ríkið muni styðja sveitarfélög fjárhagslega til að sinna umræddu eftirliti. Að lokum vill velferðarráð minna á forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar sem vinnur að því að skapa uppeldisskilyrði og samfélag sem eflir sjálfsmynd og sjálfstraust barna og ungs fólks m.a. með því að koma í veg fyrir og draga úr vímuefnaneyslu þeirra. Þá er Reykjavík í fararbroddi 18 evrópskra borga sem vinna markvisst gegn vímuefnanotkun ungs fólks.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Fleiri fréttir Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Sjá meira