Skilar sér í lækkun til neytenda 24. október 2007 14:24 Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. MYND/GVA
Formaður Neytendasamtakanna fagnar yfirlýsingu viðskiptaráðherra um afnám stimpil- og vörugjalda á næstu mánuðum og styrkingu neytendamála. Hann segist fullviss um að þetta skili sér í lækkun til neytenda. „Ég fagna þessu útspili viðskiptaráðherra," sagði Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, í samtali við Vísi. „Þarna er loksins tekið á gömlum draugum sem Neytendasamtökin hafa barist lengi gegn. Ég vona að þetta verði upphafið að betri tíð fyrir íslenska neytendur." Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, kynnti í morgun heildarstefnumótun á sviði neytendamála. Samkvæmt henni á meðal annars að leggja niður stimpil- og vörugjöld á næstu mánuðum og draga úr innflutningshömlum. Þá á ennfremur að tryggja að sjálftaka í gjaldtöku fjármálastofnana með seðilgjöldum eða vanskilagjöldum eigi sér ekki stað. Jóhannes segist fullviss um að aðgerðir stjórnvalda skili sér í vasa neytenda. „Ég minni á að íslensk verslun hefur verið að kvarta undan þessum vörugjöldum lengi. Neytendur hafa svarað með því að kaupa tiltekna vöru í útlöndum. Ég sé því ekki fyrir mér að verslanir reyni að stinga þessum lækkunum í eigin vasa." Jóhannnes fagnar ennfremur yfirlýsingu ráðherra um að taka eigi á gjaldtöku fjármálastofnana. „Það liggur fyrir að gjaldtaka banka og fjármálastofnana hér á landi er allt of há. Miklu hærri en gengur og gerist í nágrannalöndum okkar."
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Fleiri fréttir Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Sjá meira