Innlent

Jafnréttisviðurkenning afhent í dag

MYND/Pjetur

Jafnréttisviðurkenning ársins 2007 verður afhent í dag um leið og stjórnvöld úthluta fimm styrkjum til rannsókna á sviði jafnréttismála.

Það er félagsmálaráðherra sem veitir jafnréttisviðurkenninguna við athöfn á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu en við sama tækifæri veitir forsætisráðherra styrki úr Jafnréttissjóði sem komið var á fót árið 2005.

Styrkirnir fara til meðal annars til rannsókna á stöðu kynjanna á vinnumarkaði og enn fremur í rannsóknir á áhrifum gildandi löggjafar. Að þessu sinni bárust 13 umsóknir og í ár fá 5 verkefni styrk samtals að upphæð níu milljónir króna.

Við athöfnina kynna styrkhafar frá því í fyrra niðurstöður og framgang verkefna sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×