MK hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs 24. október 2007 17:05 MYND/Heiða
Menntaskólinn í Kópavogi hlaut í dag jafnréttisviðurkenninguna fyrir árið 2007. Hún var afhent við hátíðlega athöfn á Nordica-hóteli í dag. Fram kemur á vef félagsmálaráðuneytisins að Menntaskólinn í Kópavogi hafi skýra og virka jafnréttisstefnu gagnvart bæði nemendum og starfsfólki skólans. Markmið jafnréttisáætlunar skólans sé að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla innan skólans og jöfnum tækifærum einstaklinga á sem flestum sviðum, óháð kynferði. Þetta eigi meðal annars við um rétt til starfa, aðstöðu, menntunar og launa fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf. Enn fremur séu hlutföll kynjanna jöfn á flestum sviðum skólans, hvort sem það er í hópi stjórnenda, annars starfsfólks eða meðal nemenda. Þá er bent á að menntaskólinn hafi tekið þátt í samevrópsku verkefni þar sem leitast er við að gera nemendur meðvitaða um kyn og kynímyndir, hvernig þær mótast og þeim viðhaldið. Þá hefur skólinn staðið fyrir sérstakri jafnréttisviku í mars síðastliðnum þar sem að kennslan hafði jafnrétti kynjanna að inntaki með einum eða öðrum hætti auk metnaðarfullrar dagskrár þar sem fjallað var um jafnrétti kynjanna frá ýmsum sjónarhornum. „Jafnréttisráð telur að Menntaskólinn í Kópavogi sýni gott starf á sviði jafnréttismála og vill með viðurkenningunni hvetja aðra skóla til líkrar starfsemi," segir á vef félagsmálaráðuneytisins. Það var Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sem veitti skólanum viðurkenninguna.
Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Fleiri fréttir Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sjá meira