Segja skógeyðingu blasa við á Hólmsheiði 24. október 2007 16:43 Frá Hólmsheiði. MYND/Vilhelm
Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur leggst alfarið gegn fyrirhuguðum byggingarframkvæmdum á Hólmsheiði og skorar á borgarstjórn Reykjavíkur að endurskoða aðalskipulag borgarinnar með það fyrir augum að finna aðrar lausnir en að ganga á verðmæt útivistarsvæði. Þetta kemur fram í umsögn félagsins um tillögu að nýju deiliskipulagi á Hólmsheiði. Bent er á að um sé að ræða 170 hektara svæði sem sé fullgróðursett trjám og með framkvæmdunum muni hálf milljón trjáplatna eyðast. Þá er bent á að skógrækt hafi gengi framar björtustu vonum á svæðinu og að hún sé á engan hátt tilviljanakennd „heldur unnin af Skógræktarfélagi Reykjavíkur undir yfirstjórn embættis Borgarverkfræðings sem er nú heitir Framkvæmdasvið og Umhverfissvið Reykjavíkurborgar," segir í umsögninni. Skógræktarfélagið bendir enn fremur á að í rúm 20 ár hafi reykvísk ungmenni í Vinnuskóla Reykjavíkur og hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur unnið í sumarvinnu við þessa skóggræðslu en með skógeyðingunni yrði miklum vinnukostnaði fórnað. Þá segir félagið að í kynningu á deiliskipulagstillögununum hafi verið verið lögð mikil áhersla að mið væri af því skóglendi sem vaxið hefur upp og leitaðist við að samtvinna það við hönnun svæðisins. Telur stjórn Skógræktarfélagsins það lofsvert en að eyðileggingin verði nánast alger frá skógræktarsjónarmiðum. Það byggist meðal annars á fyrri reynslu í bæði Ártúnsholti og Grafarholti, en þar hafi loforð verið svikin. Telur Skógræktarfélagið uppbygginguna aðeins upphafið að því að leggja Austurheiðarnar allar undir byggingarframkvæmdir á næstu árum og áratugum. Stjórn Skógræktarfélagsins mælir því eindregið með heildarendurskoðun á aðalskipulagi fyrir svæðið. Loks bendir Skógræktarfélagið á að skógeyðingin á þessum 170 hekturum samsvari losun á um 13.400 tonnum af koltvísýringi „og er það losun sem koma þyrfti til frádráttar losunarheimildum í bókhaldi Íslands gagnvart Kýótósamningnum og loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna," segir í umsögn Skógræktarfélags Reykjavíkur.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Fleiri fréttir Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Sjá meira