Búist við að 800 tonn af flugeldum verði sprengd upp 28. desember 2007 15:06
Sorphirðan í Reykjavík varar fólk við að henda leifum af flugeldum í ruslatunnur. Kaupendur flugelda eiga að fara sjálfir með umbúðir og aðrar leyfar í endurvinnslustöðvar Sorpu. Búast má við mikilli loftmengun á gamlárskvöld því skottertur og blys valda mestum reyk. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að búist sé við að 800 tonn af flugeldum verði sprengd upp í kringum áramótin. Spáð er að stórar skottertur njóti vinsælda meðal almennings og því er líklegt að víða standi tómir tertukassar á nýársdag. Íbúar á Höfuðborgarsvæðinu eru því hvattir til þess að skila umbúðum og leyfum af flugeldum og tertum á endurvinnslustöðvar Sorpu sem opna 2. janúar. Starfsmenn endurvinnslustöðva meta þá hvort sorpið getur flokkast með pappa, sé óendurvinnanlegt eða hvort það þurfi að eyða því sökum gruns um að eitthvað sé enn ósprungið. Starfsmenn Sorphirðu Umhverfissviðs Reykjavíkur keppast við milli jóla og nýárs að tæma hverja einustu tunnu einu sinni. Verkið hófst strax á annan í jólum og lýkur vonandi fyrir gamlársdag „Um hátíðarnar fellur til mikið rusl og við viljum alls ekki fá terturnar í tunnarnar. Bæði er það óæskilegt vegna hættu á íkveikju og svo fylla þær tunnurnar," segir Sigríður Ólafsdóttir rekstrarstjóri Sorphirðunar. Einnig hvetur hún íbúa borgarinnar að moka frá sorptunnunum svo að hægt verði að ljúka vikulegri yfirferð fyrir ármót. Sigríður segir að hver hirði eftir sig og gangi frá. „Meginreglan er að íbúar í hverju borgarhverfi hreinsi sjálfir sitt nánasta umhverfi eftir flugeldasýninguna miklu, sæki leyfarnar á nýársdag og fari með þær í Sorpu 2. janúar," segir hún.
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Fleiri fréttir Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Sjá meira