Ferja sigli átta sinnum á sólarhring milli Eyja og lands á sumrin 24. október 2007 16:11 MYND/Óskar P. Friðriksson
Bæjarráð Vestmannaeyja gerir kröfu um að ferja sem sigla á milli Eyja og Bakkafjöru sigli sex sinnum á sólarhring á veturna og átta sinnum á sumrin og að far- og farmgjöld taki mið að því að um þjóðveg sé að ræða. Bæjarráðið fundaði í dag þar sem rætt var útboð á slíkri ferju. Telur ráðið afar mikilvægt að kröfur og óskir Eyjamanna liggi fyrir áður en rekstur og eignarhald verður boðið út. Í tilkynningu frá bænum kemur fram að gott samstarf hafi verið í málinu til þessa og að Vestmannaeyjabær hafi einsett sér að vinna áfram af fullum heilindum að þeim miklu samgöngubótum sem felast í nýrri ferju. Samþykkti bæjarráðið minnisblað í dag undir nafninu „Sjónarmið Vestmannaeyjabæjar vegna fyrirhugaðs útboðs á hönnun, smíði og rekstri ferju milli Bakka og Vestmannaeyja“. Þar gerir bærinn meðal annars kröfu um að skipið beri 55 bíla og 350 farþega, frátafir verði ekki meiri en þær hafa verið í siglingum til Þorlákshafnar, ferðatíðnin verði ekki minni en 6 ferðir á sólarhring yfir vetrartímann og 8 á sólarhring yfir sumartímann og að fyrsta ferð verði ekki farin síðar en klukkan sjö frá Eyjum og seinasta ferð til Eyja sé um klukkan 23. Þá vill bæjarráð að ekki verði samið við einn aðila um rekstur ferjunnar til lengri tíma en fimm ára og í 1-2 ár til að byrja með á meðan reynsla er að komast á þessar nýju samgöngur. Gengið sé út frá því að hafnarmannvirki og önnur mannvirki í Bakkafjöru verði í rekstri eigenda hafnarinnar, þ.e.a.s. sveitarfélaganna Vestmannaeyjabæjar (60%) og Rangárþings Eystra (40%). Vilja forðast Grímseyjarferjuklúður Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir minnisblaðið unnið í samráði við sérfróða, þar á meðal skipstjórnendur á Herjólfi, reynda skipstjóra og sjómenn í Vestmannaeyjum. „Tilgangurinn er að varpa ljósi á sjónamið okkar heimamanna sem höfum áratugareynslu af notkun og þjónustu ferjusiglinga. Í ljósi þeirra mistaka sem gerð voru við endurbætur á ferju til siglinga til Grímseyjar teljum við verulega áríðandi að vilji okkar, kröfur og óskir komi skýrt fram," segir Elliði.Stýrihópur starfar nú að málinu og segir Elliði að minnisblaðið hafi þegar verið sent honum og samgönguráðherra. „Ég á von á viðbrögðum frá þeim fyrr en varir. Líklegt þykir mér að í megindráttum verði orðið við kröfum og óskum okkar enda þær vel rökstuddar og útfærðar," segir Elliði.
Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Erlent Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Erlent Árekstur á Sprengisandi Innlent Miðflokkurinn skarar fram úr í kjördæmi formannsins Innlent Fleiri fréttir Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundur Ingi ekki á lista Samfylkingar „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Fallni prinsinn handtekinn og undirboð á fasteignamarkaði aukast Heitavatnslög gaf sig í Varmahlíðarskóla Miðflokkurinn skarar fram úr í kjördæmi formannsins „Fjölskyldur eru margar í algjörri spennitreyju“ Fleiri telja Bandaríkin andstæðing en bandamann Bein útsending: Heimilisleysi á Íslandi Ráðist á ungan dreng með piparúða „Alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur“ Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Þurfi að útkljá hver er að misskilja hvern Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Með Alzheimer en gæti beðið í fjögur ár Braut á ungri bróðurdóttur sinni sem bjó á heimilinu Nauðgari hélt því fram að Snapchat-skilaboð væru ekki frá honum Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Borgin taki til sín fimmtung launahækkunar barnafólks Almannatryggingamálinu frestað en engar breytingar í farvatninu Ótrúlegt hve fáar virkjanir komist í gegnum rammaáætlun Tekur tímabundið við Framsóknarflokknum Sjá meira