Búsæld eignast Norðlenska 19. desember 2007 15:02
Eignarhaldsfélagið Búsæld, sem er félag kjötframleiðenda í Eyjafirði, Þingeyjarsýslum og á Austur- og Suðausturlandi kaupi, hefur keypt öll hlutabréf í kjötvinnslufyrirtækinu Norðlenska fyrir 568 milljónir króna.Búsæld átti tæp 40 prósent í fyrirtækinu en kaupir rúmlega 45 prósenta hlut KEA, tæplega átta prósenta hlut Norðurþings og Akureyrarbæjar og rúmlega sjö prósenta hlut eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga í Norðlenska. Skrifað var undir samninginn við Akureyrarbæ með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.Kaup Búsældar á hlutabréfum KEA eru samkvæmt hluthafasamkomulagi sem félögin gerðu árið 2004 eftir því sem segir í tilkynningu vegna kaupanna.Þá hefur verið gengið frá samningi við fasteignafélagið Miðpunkt á Akureyri, sem er í eigu Eiðs og Hreins Gunnlaugssona, um kaup þess á öllum fasteignum Norðlenska við Grímseyjargötu á Akureyri og yfirtöku á lóðarleigusamningi. Aðkoma Miðpunkts að málinu með kaupum á fasteignunum á Akureyri skiptir sköpum fyrir Búsæld í kaupum á öllum hlutabréfum í Norðlenska og að framleiðendur eignist þannig félagið að fullu.Norðlenska verður þó áfram með stórgripasláturhús og kjötvinnslu í húsakynnunum en mun eftir söluna leigja húsakynnin samkvæmt bindandi tólf ára leigusamningi. Norðlenska mun áfram eiga og reka núverandi fasteignir félagsins á Húsavík þar sem er sauðfjársláturhús og langstærsta sérhæfða vinnslustöð landsins fyrir kindakjöt.Í Búsæld eru nú um 530 kjötframleiðendur af Norðurlandi, Austurlandi og Suðausturlandi. Félagið er af þeim stærstu á Norðausturlandi með rúmlega þriggja milljarða króna veltu. Hjá félaginu eru um 180 ársverk, þar af um 170 ársverk á Akureyri og Húsavík, 8 á Höfn í Hornafirði og 6 í Reykjavík.
Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Erlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Innlent Fleiri fréttir Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Myndi stefna ríkinu og fara með það alla leið „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Sjá meira