Stimpil- og vörugjöld burt á næstu mánuðum 24. október 2007 11:41
Stimpil- vörugjöld verða lögð niður á næstu mánuðum og lagafrumvarp um greiðsluaðlögun lagt fram á yfirstandandi þingi að sögn Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra sem í morgun kynnti heildarstefnumótun á sviði neytendamála sem hann hyggst hrinda af stað. Viðskiptaráðherra hefur þegar falið Félagsvísindastofnun, Hagfræðistofnun og Lagastofnun Háskóla Íslands að vinna ítarlega rannsókn á stöðu neytendamála hér á landi. Meðal markmiða stefnumótunarinnar er að vinna gegn háu verðlagi á Íslandi, auðvelda almenningi að takast á við breytta heimilis- og verslunarhætti og styrkja og auka vitund neytenda um rétt sinn. Þá á að innleiða í auknum mæli upplýsingatækni í þágu neytenda og styðja þá til að taka virkari þátt til að sinna hagsmunum sínum á markaði. Fram kemur í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu að íslenskir neytendur eigi rétt á að fá vöru og þjónustu á sambærilegu verði og neytendur í nágrannalöndunum. Ráðuneytið muni markvisst leita leiða til að því markmiði verði náð og skorar á íslenska neytendur til samstarfs um það. Í því augnamiði á einnig að styrkja Samkeppniseftirlitið, neytendastofnanir og auka framlag til Neytendasamtakanna. Enn fremur á að draga úr margvíslegum innflutningshömlum, svo sem vörugjöldum og tollum. Enn fremur hyggst ráðherra leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins. Komið í veg fyrir sjálftöku bankanna Þá verður flutt frumvarp um greiðsluaðlögun á yfirstandandi þingi til þess að hjálpa fólki sem lendir í efnahagsáföllum, t.d. vegna slysa eða veikinda, að koma undir sig fótunum á ný. Þá segir í tilkynningunni að tryggja þurfi að sjálftaka í gjaldtöku fjármálastofnana, s.s. með seðilgjöldum eða vanskilagjöldum, eigi sér ekki stað. Efla þurfi samkeppni um þjónustu á þessu sviði til hagsbóta fyrir heimilin í landinu.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Fleiri fréttir Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Sjá meira