Innlent

Vísaði frá máli um rekstur álbræðslu í Straumsvík

MYND/Anton

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá máli eigenda Óttarstaða vegna álversins í Straumsvík. Jörðin er í nágrenni við álverið og vildu eigendur hennar að dómurinn úrskurðaði að óheimilt væri að reka álbræðslu í Straumsvík vegna gastegunda og reyks sem takmarkaði not landeigenda af jörðinni.

Höfðuðu þeir mál á hendur Alcan, íslenska ríkinu og Hafnarfjarðarkaupstað vegna þessa. Þá settu eigendur Óttarstaða einnig fram dómkröfur um að Alcan keypti að þeim land sem ekki væri hægt að nýta eða að félagið greiddi þeim skaðabætur vegna þessa. Dómurinn vísaði hins vegar málinu frá á grundvelli ófullnægjandi kröfugerðar.

Fram kemur meðal annars í dómnum að eigendur jarðarinnar geti ekki samhliða gert kröfu um viðurkenningu á óheimilum rekstri og um skaðabætur. Hér sé um valkvæða kröfugerð að ræða þar sem lög standi ekki til þess að heimilt sé að verða við báðum kröfunum samhliða. Með vísan til þessa vísaði dómurinn málinu frá í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×