Auðlindafrumvarp í anda Indónesa 24. október 2007 10:27
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra fer mikinn á blog-síðu sinni þessa dagana en hann hefur verið í opinberri heimsókn í Indónesíu. Össur er greinilega mjög hrifinn af því hvernig löggjöf Indónesar hafa um orku-og auðlindir sínar og í síðustu blogfærslu skrifar Össur um nýtt auðlindafrumvarp sem hann hefur í smíðum og ber helst að skilja á honum að fordæmi Indónesa verði þar m.a. lagt til grundvallar. Annars eru helstu ákvæði í komandi auðlindafrumvarpi iðnaðarráðherra þau að lögbundinn aðskilnaður verði á annars vegar samkeppnisrekstri, þ.e.a.s. framleiðslu og sölu á orku, og hins vegar á sérleyfisþáttum, dreifingu orku, svo sem rafmagns, heits og kalds vatns, og fráveitum. Ríki, sveitarfélög eða fyrirtæki í þeirra eigu, megi ekki selja frá sér sjálfar orkulindirnar. Einkaaðilar sem búa yfir orkulindum fá hins vegar að ráðstafa þeim sjálfir að eigin vild í samræmi við lög og reglur. Þess ber hins vegar að geta, að mikill meirihluti nýttra og ónýttra orkulinda er nú þegar í opinberri eigu í gegnum þjóðlendur, ríkisfyrirtæki, ríkisjarðir, sveitarfélög, jarðir í þeirra eigu, eða fyrirtæki sem þau eiga. Sérleyfis- eða einokunarþættirnir verði í félagslegri meirihlutaeign til að tryggja hagsmuni íbúanna um verð og gæði. Fyrirmyndin að þessu er úr vatnsveitulögunum þar sem kveðið er á um að vatnsveita verður að vera undir slíku eignarhaldi. Nýting orkulindanna má láta með tímabundnum hætti í hendur einkafyrirtækja gegn fullu gjaldi, sem rennur þá til eigandans hverju sinni, sem er þá ýmist sveitarfélag, fyrirtæki í eigu sveitarfélaga, ríkið, eða fyrirtæki í eigu ríkisins. Forgangsákvæði tryggði að almennu veiturnar, sem yrðu þá á hendi félagslegs meirihluta, hefðu jafnan tryggan forgang að orku og vatni. Í því felst sterk vernd fyrir neytendur á viðkomandi svæði
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Sjá meira