Innlent

Hrasaði í skriðu

MYND/GVA

Lögregla og björgunarmenn á Suðurnesjum bjuggust í gærkvöld undir björgunaraðgerð í berginu við Grófina í Keflavík, þar sem talið var að unglingspiltur hefði hrapað fyrir björg.

Hann hafði hrasað þar í skriðu og hringt í vin sinn, sem hringdi í neyðarlínuna eftir aðstoð.

Pilturinn komst hinsvegar af sjálfs dáðum upp á hamarinn og reyndist lítið meiddur. Lögregla lét svo foreldra hans sækja hann á lögreglustöðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×