Innlent

Fimm handteknir í annarlegu ástandi í Mosfellsbæ

MYND/Hari

Lögreglan á höfuðborgarsvæðin handtók fimm manns og lagði hald á nokkurt magn af lyfjum og haglabyssu í heimahúsi í Mosfellsbæ í nótt.

Lögregla fékk tilkynningu um fólk í annarlegu ástandi og þegar hún kom á vettvang voru þar fjórir karlar, þrír á þrítugsaldri og einn á fertugsaldri, og 16 ára stúlka. Hún var meðvitundarlaus en rankaði fljótt við sér.

Fólkið er allt grunað um fíkniefnamisferli og standa yfirheyrslur yfir þeim enn yfir eftir því sem segir í tilkynningu lögreglunnar. Einn karlanna var með ætluð fíkniefni í fórum sínum en við húsleit á heimili hans í Reykjavík í nótt fundust einnig ætluð fíkniefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×