FÁR: Leggst gegn áfengisfrumvarpinu 26. nóvember 2007 16:23 MYND/Anton Brink
Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa, (FÁR), hefur sent ályktun á alla alþingismenn þar sem þeir eru hvattir til þess að leggjast gegn frumvarpi sem heimilar sölu áfengis í matvöruverslunum. Magnús Einarsson, ritari FÁR, segir að þar á bæ séu menn vongóðir um að þinmenn átti sig á alvarleika málsins og þeim afleiðingum sem sala léttvíns og bjórs í matvöru búðum myndi hafa í för með sér. Magnús segir að það hafi margoft sýnt sig að sú forvörn sem felst í því að hefta aðgengi að áfengi sé ódýrasta og virkasta aðferðin sem um getur og því sé varhugavert að breyta. Að mati félagsfundar FÁR vinnur umrætt frumvarp gegn þessum markmiðum Heilbrigðisáætlunarinnar." Ályktunina í heild sinni má lesa hér fyrir neðan.„Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa (FÁR) leggst eindregið gegn fumvarpi til laga um sölu áfengis í matvöruverslunum og skorar á alþingismenn að standa vörð um markmið áfengislaga, sem er að vinna gegn misnotkun áfengis og greiða því atkvæði gegn frumvarpinu. Áfengisvandinn er vaxandi heilbrigðisvandamál hér á landi samhliða mikilli aukningu á neyslu áfengis. Í kjölfarið siglir svo vandi vegna annarra löglegra og ólöglegra vímuefna. Kostnaður samfélagsins af áfengisneyslu er verulegur. Í gögnum frá Lýðheilsustöð kemur fram að áætlaður heildarkostnaður þjóða af völdum áfengisneyslu sé á bilinu 1-3% af þjóðarframleiðslu og ætla má að þessi kostnaður sé ekki undir 30 milljörðum á Íslandi. Þá er ótalinn sá tilfinningalegi skaði sem ofneysla áfengis veldur þeim sem glíma við áfengisvanda, börnum þeirra og öðrum aðstandendum. Á Íslandi hefur um langt árabil verið athugað markvisst af forvarnarfulltrúanum í Hafnarfirði, hvort unglingar undir aldri fái keypt tóbak í verslunum. Niðurstöður þeirra athugana benda til þess að um þriðjungur ungmenna sem ekki eiga að fá keypt tóbak geti verslað það í búðum hér. Bandarísk rannsókn hefur leitt í ljós að auðveldara er fyrir fólk undir lögaldri að fá keypt áfengi í matvöruverslunum og stórmörkuðum en sérstökum áfengisverslunum. Ætla má að svipað verði uppi á teningnum hér. Rannsóknir hafa sýnt að samband er á milli aðgengis að áfengi og neyslu, þannig að aukið aðgengi eykur neyslu. Ennfremur er ljóst að aukinni neyslu fylgir aukinn vandi. Áfengi hefur neikvæð áhrif á fjölda sjúkdóma, er oft orsakaþáttur í slysum og getur haft veruleg neikvæð samfélagsleg áhrif. Áfengisneysla á meðgöngu hefur skaðleg áhrif á þroska barnsins og síðar á fullorðinsárum. Í Heilbrigðisáætlun til ársins 2010, sem samþykkt var samhljóða á Alþingi þann 20. maí 2001, eru áfengis-, vímuefna- og tóbaksvarnir settar fram sem fyrsta markmið. Þar eru sett fram markmið um að minnka heildarneyslu áfengis hér á landi og ekki síður að vinna gegn neyslu ungs fólks. Að mati félagsfundar FÁR vinnur umrætt frumvarp gegn þessum markmiðum Heilbrigðisáætlunarinnar." Ályktunin var samþykkt á almennum félagsfundi Félags áfengis- og vímuefnaráðgjafa þann 22. nóvember 2007.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira