Innlent

Slasaðist í bílveltu við Kaplakrika

Ökumaður slasaðist ekki alvarlega. Mynd úr safni.
Ökumaður slasaðist ekki alvarlega. Mynd úr safni.

Einn maður slasaðist lítillega þegar fólksbíll valt við Kaplakrika í Hafnarfirði um níuleytið í morgun. Aðdragandi slyssins var sá að vörubíll beygði í veg fyrir fólksbílinn með þeim afleiðingum að hann rakst í eitt hjólið á vörubílnum. Við það snerist hann á veginum og valt. Um tíma var talið að ökumaður fólksbílsins hefði slasast alvarlega en svo reyndist ekki vera þegar betur var að gáð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×