Innlent

Varðskip kom vélarbiluðum báti til hjálpar

Jón á Hofi ÁR-62.
Jón á Hofi ÁR-62. MYND/Rammi.is

Varðskip Landhelgisgæslunnar fór í morgun að dragnótabátnum Jóni á Hofi sem var vélarvana um 25 sjómílur norðvestur af Garðskaga út af Reykjanesi. Tilkynning barst til gæslunnar klukkan átta í morgun. Ellefu manna áhöfn er um borð í bátnum. Varðskip kom taug í skipið á tólfta tímanum og dregur nú bátinn í land. Búist er við að skipin verði komin til Reykjavíkur um kvöldmatarleitið í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×