Starfsmaður Ríkiskaupa segir rangt eftir sér haft 20. nóvember 2007 18:09 MYND/Vilhelm
Ríkisskaup hafa sent frá sér tilkynningu vegna forsíðufréttar DV í dag þar sem segir að stofnunin telji að hún hefði átt að sjá um sölu á íbúðum á Keflavíkurflugvelli. Í tilkynningunni segir að starfsmaðurinn sem vitnað er í í fréttinni telji rangt eftir sér haft í greininni í veigamiklum atriðum. „Aðspurður greindi hann (starfsmaður Ríkiskaupa innsk. Vísis) fréttamanni frá því að í gildi væri reglugerð um ráðstöfun eigna ríkisins nr. 206/2003," segir í tilkynningunni. Þegar hann hafi verið spurður hvort umræddar eignir hafi verið í sölumeðferð hjá Ríkiskaupum sagði hann að svo hafi ekki verið. „Ummæli um að hann undraðist að eignirnar hafi ekki verið í sölumeðferð kannast hann ekki við og eins fullyrðingar um að hann hafi talið að eignirnar eigi að seljast hjá Ríkiskaupum telur hann ekki rétt hafðar eftir sér." Þá segir að viðkomandi starfsmaður, sem er fulltrúi á eignasölusviði Ríkiskaupa, hafi vísað að öðru leiti til fjármálaráðuneytisins sem eignasölumál ríkisins heyra undir. „Benda má á í þessu sambandi að í framangreindri reglugerð kemur m.a. fram í 9. gr. að fjármálaráðherra geti við sérstakar aðstæður veitt heimild til að víkja frá ákvæðum reglugerðar þessarar varðandi framkvæmd sölu eigna ríkisins. Ýmis sjónarmið, lög og reglur um meðferð eigna ríkisins koma til álita þegar selja á eignir ríkisins þannig að líta þarf til heildarmyndar laga og reglna og ekki grípa eina ákveðna reglugerð og alhæfa eftir henni." „Ríkiskaup átelja þann fréttaflutning sem viðhafður var í þessu tilviki og að fréttamaðurinn hefði átt að leita til viðkomandi yfirmanna og viðkomandi ráðuneytis."
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Fleiri fréttir Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Sjá meira