Strætóbílstjóri gagnrýnir Strætó Breki Logason skrifar 20. nóvember 2007 14:58 Rútur hafa verið notaðar í stað strætisvagna á Leið 2. „
Þú ferð ekki inn í rútu með barnavagn þó hún sé gul að framan," segir Ingunn Guðnadóttir strætóbílstjóri en Leið 2 hjá Strætó hefur notað rútur frá Hagvögnum í stað strætisvagna upp á síðkastið. Í frétt sem birtist á Vísi fyrir skömmu kom fram að rúta sem væri á Leið 2 væri þar tímabundið en nú virðist vera búið að bæta við annarri og eru því tvær rútur sem keyra á Leið 2 að sögn Ingunnar. „Fólk fattar ekki að þetta er Strætó en ekki rúta. Síðan eru það útlendingar sem keyra og fólk getur því ekki spurt hvort þetta sé rétti vagninn. Þú bíður ekki fólki upp á að fara með barnavagn inn í svona rútu og síðan á gamalt fólk líka erfitt með að komast upp í," segir Ingunn sem er orðin þreytt á þessu aðgerðarleysi Strætó. Sjálf starfar hún sem strætóbílstjóri og þekkir því þessi mál nokkuð vel. „Sem strætóbílstjóri þá hefurðu bara ákveðnu þjónustuhlutverki að gegna. Þessir útlendingar skilja ekkert í íslensku og vita ekki hvaða götur þeir eru til dæmis að keyra. Það er því erfitt fyrir okkur að hafa samskipti við þá. Það bara verður einhver að standa upp og segja fólki hvernig þetta er," segir Ingunn sem undrast vinnubrögð Strætó. „Staðan var sú að verktakinn var að fá nýja bíla um það leyti sem fréttin birtist hjá ykkur um daginn. Það var vitað að hér væri um tímabundið ástand að ræða en það dróst eitthvað afhending á þremur nýju vögnum sem komu á mismunandi tímum. Það var ein rúta á þessari leið og að mér best vitandi hefur ekki verið bætt við. Ég mun fara í það að skoða þetta mál," segir Hörður Gíslason hjá Strætó BS. Hörður segist gera sér fulla grein fyrir því að rúta sé ekki strætisvagn og skilur gremju í fólki sem kemst ekki inn með barnavagn og annað. „Þetta er auðvitað leiðindarmál en ég mun kanna þetta."
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Innlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Innlent Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Hildur í beinni um þreifingar dagsins Lögreglu hafi stafað hætta af manninum „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Sjá meira