Ekki króna til að bæta búsetuúrræði fatlaðra Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. nóvember 2007 12:59 Birkir J. Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði ráðherra um búsetumál fatlaðra. „
Ég myndi halda að bið eftir íbúðum fyrir fatlaða væri að minnka," segir Þór Þórarinsson, sérfræðingur hjá félagsmálaráðuneytinu. Hann segir að á næstu dögum muni Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra svara fyrirspurn um þetta mál á Alþingi. „Málin munu skýrast þá," bætir Þór við. 24 stundir greindu frá því í dag að Þröstur Sverrisson, einstæður faðir tvítugs pilts með Asperger-heilkenni og 12 ára stúlku, hefði um tveggja ára skeið reynt að finna búsetuúrræði fyrir son sinn en án árangurs. Hann segir að son sinn, Birki Frey, langi til að eignast eigið heimili. „Þegar ungt fatlað fólk vill stofna heimili ætti manneskja frá svæðisskrifstofu fatlaðra að setjast niður með því og foreldrunum og ræða hvað kæmi til greina, væri þjónustan eðlileg. Það er hún hins vegar ekki," er haft eftir Þresti í 24 stundum. Það var Birkir J. Jónsson, þingmaður framsóknarflokksins, sem bar upp fyrirspurn til félagsmálaráðherra um búsetumál fatlaðra. Hann spyr meðal annars að því hversu margir séu á biðlista eftir húsnæði fyrir fatlaða og hversu mörg ný búsetuúrræði fyrir fatlaða, aðra en geðfatlaða, verði til árið 2008. „Það kom mér verulega á óvart þegar fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2008 var skoðað að það var ekki gert ráð fyrir einni einustu krónu í að auka við búsetuúrræði fatlaðra," segir Birkir. „En ég trúi ekki öðru en að félagsmálaráðherra standi við þær miklu yfirlýsingar sem hún hefur gefið út," segir hann að lokum.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Innlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Innlent Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Hildur í beinni um þreifingar dagsins Lögreglu hafi stafað hætta af manninum „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Sjá meira