Hverflar Fljótsdalsstöðvar snúast 5. nóvember 2007 18:45
Kárahnjúkavirkjun hóf raforkuframleiðslu í dag, sjö mánuðum á eftir áætlun. Jökulsá á Dal, sem í árþúsundir hefur runnið um Jökuldal, steypist nú í sexhundruð metra háum neðanjarðarfossi á aflvélar Fljótsdalsstöðvar og sameinast svo Lagarfljóti. Fimm árum eftir að framkvæmdir hófust við gljúfrið mikla við Kárahnjúka var komið að stóru stundinni í dag. Það var laust fyrir klukkan tvö sem Franz Hookstögen frá austurríska vélaframleiðandanum Vatech ræsti fyrstu aflvélina. Hverfillinn snerist fyrst hægt en eftir því sem vatnslokinn opnaðist betur fóru hjólin að snúast hraðar. Þar með var búið að hleypa vatni Jöklu úr 599 metra fallhæð á fyrstu vélina og hún sett á fullan snúningshraða. Afhending orku átti að hefjast 1.apríl í vor, fyrir sjö mánuðum. Erfiðleikar sem einn risaboranna þriggja lenti í við borun aðrennslisganga undir Þrælahálsi eru helsta ástæða seinkunar. Þau umskipti á mestu jökulá Austurlands sem við verðum hér vitni að eru í raun ótrúleg. Ímyndið ykkur ef Ölfusá væri stífluð við Selfoss og hún sett í jarðgöng alla leið til Reykjavíkur. Það er nokkurn veginn þetta sem nú er búið að gera við Jökulsá á Dal. Hún hefur nú verið færð úr einum dal yfir í annan, með fjörutíu kílómetra jarðgöngum og blandast Jökulsá í Fljótsdal áður en hún sameinast Lagarfljóti.
Mest lesið Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags Innlent Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Innlent Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Innlent Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Innlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Fleiri fréttir Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags „Ómetanlegur fjársjóður“ í heimsókn á Íslandi Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu Sjá meira