Fulltrúar eigenda OR hittast aftur eftir viku 16. nóvember 2007 22:46
Á eigendafundi Orkuveitu Reykjavíkur, sem fram fór fyrr í kvöld, voru teknar aftur ákvarðanir á umdeildum eigendafundi 3. október sl. varðandi samruna Reykjavik Energy Invest og Geysis Green Energy. Jafnframt fólu eigendur stjórnarformanni Orkuveitunnar að ræða við aðra eigendur Reykjavík Energy Invest og Geysi Green Energy um stöðu og framhald málsins og að gera eigendum grein fyrir framgangi viðræðna á eigendafundi sem haldinn verður eftir viku. Þá fólu eigendur forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur að leita sátta í málaferlum Svandísar Svavarsdóttur gegn Orkuveitu Reykjavíkur vegna lögmætis fundarins 3. október. Eigendafundinn sátu sem fulltrúar eigendanna þriggja Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fyrir hönd Reykjavíkurborgar, Gísli S. Einarsson bæjarstjóri frá Akraneskaupstað og Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri frá Borgarbyggð. Auk þess sátu fundinn stjórnarmenn Orkuveitu Reykjavíkur, Bryndís Hlöðversdóttir formaður, Ástráður Haraldsson, Jón Sigurðsson, Gunnar Sigurðsson, Júlíus Vífill Ingvarsson og Kjartan Magnússon ásamt forstjóra Orkuveitunnar, Hjörleifi B. Kvaran. Allar tillögur sem fyrir fundinum lágu voru afgreiddar samhljóða, þar á meðal svo hljóðandi bókun eigendanna: Í ljósi þess umróts sem verið hefur um starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur, lýsir eigendafundur OR því yfir að eigendur standa einhuga á bak við fyrirtækið og starfsfólk þess í þeim mikilvægu og vandasömu verkefnum sem Orkuveitan og starfsfólk hennar vinnur. Þá kynnti borgarstjóri fundinum bókanir sem borgaryfirvöld hafa gert varðandi Orkuveitu Reykjavíkur m.a. að hann myndi beita sér fyrir viðræðum ríkis, sveitarfélaga og meðeigenda í Hitaveitu Suðurnesja um framtíð fyrirtækisins í því skyni að tryggja að auðlindir og almenningsveitur verði í eigu almennings. Enn fremur lagði borgarstjóri fram bókun borgarráðs Reykjavíkur varðandi upplýsingaöflun um fyrirætlanir OR, virkjanaáform, stöðu framkvæmda, viljayfirlýsinga og samninga, auk yfirlits yfir þá aðila sem hafa óskað eftir viðræðum um orkukaup. Fulltrúar eigenda Orkuveitunnar munu hittast aftur föstudaginn 23. nóvember og fara þá á ný yfir stöðu mála.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Fleiri fréttir Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Sjá meira