Fáum allt að hálfrar milljón tonna afla úr deilistofnum 16. nóvember 2007 19:48
Veiðar Íslendinga á deilistofnum á Norðaustur Atlantshafi gætu numið allt að hálfri milljón tonna á næsta ári. Þetta kemur fram í frétt sjávarútvegsráðuneytisins um ársfund Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar, NEAFC sem lauk í dag. Á fundinum var m.a. fjallað um stjórn veiða á kolmunna, úthafskarfa, norsk-íslenskri síld og makríl fyrir árið 2008 auk verndunar viðkvæmra hafsvæða og aðgerða gegn ólöglegum og óábyrgum fiskveiðum. Á fundinum náðist samkomulag um stjórn kolmunnaveiða sem öll veiðiríkin samþykkja. Á árinu 2005 náðist strandríkjasamkomulag um stjórn veiðanna, sem batt enda á stjórnlausar ofveiðar fyrri ára. Ákveðið var að á árinu 2008 verði heimilað að veiða alls 1.266 milljónir tonna af kolmunna, þar sem hlutur Íslands er tæp 203 þúsund tonn, eins og samþykkt var á fundi strandríkjanna í október. Ekki náðist samkomulag um stjórn veiða á úthafskarfa á Reykjaneshrygg. Á fundinum var hins vegar ákeðið að strandríkin bjóði til fundar með öllum aðildarríkjum NEAFC 15.-16. janúar 2008. Á þeim fundi er stefnt að því að ná samkomulagi um stjórn veiðanna, þar með talið um heildaraflamark og skiptingu aflamarks meðal allra aðildarríkja NEAFC. Á fundinum náðist samkomulag um 14.500 tonna úthafskarfaafla í síldarsmugunni. Að mati Alþjóða hafrannsóknaráðsins, ICES, er stofninn talinn standa illa og hefur ráðið lagt til að engar beinar veiðar séu stundaðar úr honum. Í ár voru veidd um u.þ.b. 15.000 tonn af úthafskarfa á svæðinu. Á fundinum lögðu Norðmenn fram tillögu um að engar veiðar yrðu heimilar á þessu ári og meðafli við aðrar veiðar yrði ekki meiri en 1%. Íslendingar studdu tillögu Norðmanna, enda var hún í samræmi við vísindaráðgjöf. Fulltrúar Færeyinga, Rússlands og Evrópusambandsins gátu ekki stutt tillögu Norðmanna um engar veiðar og varð niðurstaðan sú að leyfa veiðar á 14.500 tonnum af úthafskarfa í síldarsmugunni á tímabilinu 1. september til 15. nóvember 2008 og meðafli á karfa fari ekki yfir 1% við aðrar veiðar. Á grunni samkomulags strandríkja um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum var ákveðið að heildaraflamark fyrir árið 2008 yrði 1.518.000 tonn. Í hlut Íslands á árinu 2008 koma 220.262 tonn.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira