Innlent

Slökkvilið kallað að fjölbýlishúsi í Kópavogi

Slökkviliðsmenn. Úr safni.
Slökkviliðsmenn. Úr safni. MYND/365

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að fjölbýlishúsi við Álfatún í Kópavogi laust fyrir klukkan fjögur í dag. Þar hafði húsráðandi gleymt potti á eldavél.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var mikill reykur í íbúðinni þegar slökkvilið bar að garði en enginn eldur laus. Íbúðin var mannlaus. Slökkviliðsmenn reykræstu íbúðina en ekki liggur fyrir hvort einhverjar skemmdir hafi orðið vegna reyksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×