Horfir til landauðnar innan velferðarþjónustunnar 16. nóvember 2007 14:52 MYND/ÞÖK
Ef starfsfólki í almannaþjónustu verður ekki greitt kaup og búið að því eins og best gerist á launamarkaði horfir til landauðnar á mikilvægum sviðum velferðarþjónustunnar. Þetta sagði Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, í ræðu sinni á aðalfundi bandalagsins í dag. Kjaramál voru þar til umræðu og ályktaði bandalagið um að verulegar kjarabætur þyrfti til handa þeim sem ynnu í almannaþjónustunni í komandi kjarasamningum. „Ef ekkert verður að gert blasir við neyðarástand," sagði Ögmundur. Í ályktun BSRB er bent á misskipting hafi aukist í íslensku samfélagi og það gangi í berhögg við réttlætiskennd fólks. Öflug velferðarþjónusta sé mikilvæg forsenda stöðugleika og ljóst sé að stórátak þurfi til þess að efla grunnþjónustu samfélagsins ef ekki eigi illa að fara. Mjög alvarlegar blikur séu nú á lofti. „Á sjúkrahúsum og dvalarheimilum fyrir aldraða, á stofnunum fyrir fatlaða, innan löggæslunnar og víðar í grunnþjónustu samfélagsins verður sífellt erfiðara að ráða fólk til starfa á þeim kjörum og við þau skilyrði sem starfsfólki eru búin. Manneklan veldur síðan enn meira álagi á starfsfólkið og vinda erfiðleikarnir þannig upp á sig. Samfélagið þarf að horfast í augu við þá staðreynd að ef lengur verður látið reka á reiðanum stefnir í óefni, ef ekki neyðarástand," segir í ályktun BSRB. Þá telur BSRB að taka þurfi meira tillit til fjölskyldunnar þegar samið sé um kaup, vinnutíma og önnur kjör því traustar atvinnutekjur og rúmur frítími geti skipt sköpum fyrir gott fjölskyldulíf. Þá segir BSRB að kynbundið launamisrétti sé óþolandi og fer fram á það að það verði upprætt. BSRB leggur enn fremur áherslu á að kjör vaktavinnufólks verði bætt verulega með hækkun launa og styttri vinnuskyldu.
Mest lesið Sigríður fannst heil á húfi Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Innlent Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Erlent Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Innlent Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Innlent Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Fleiri fréttir Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Sjá meira