Íslenskunemar eftirsóttir í íslenskukennslu fyrir útlendinga 16. nóvember 2007 13:00 Þóra Björk Hjartardóttir, dósent við íslenskuskor.
Íslenskuskor Háskóla Íslands hyggst bjóða upp á hagnýtt námskeið í íslenskukennslu fyrir útlendinga á vorönn vegna þess hve nemendur skorarinnar eru orðnir eftirsóttir sem íslenskukennarar hjá fyrirtækjum. Námskeiðið er sett á laggirnar að frumkvæði nemenda. Íslenskuskor og Mímir, félag stúdenta í íslenskum fræðum, standa fyrir íslenskuhátíð í Árnagarði í dag í tilefni dags íslenskrar tungu. Þar verða meðal annars kynnt tvö námskeið sem íslenskuskor hyggst bjóða upp á fyrir þá sem vilja kenna innflytjendum íslensku. Þóra Björk Hjartardóttir, dósent við íslenskuskor, segir að bæði námskeiðin verði á BA-stigi. Annað námskeiðið er fræðilegt og nefnist Nýtt mál og ný menning. Þar verður íslensk menning skoðuð út frá sjónarhóli útlendinga og hvernig og hvenær útlendingar geta tekið þátt í samskiptum og umræðum í íslensku samfélagi. „Hitt námskeiðið er hagnýtt og þar ætlum við að kenna íslenskunemum að kenna íslensku sem annað mál, meðal annars hvernig á að búa til kennsluefni," segir Þóra Björk. Hún segir námskeiðið sett á laggirnar að frumkvæði íslenskunema. „Það hefur færst í aukana að fyrirtæki falist eftir því við stúdenta að þeir komi og kenni útlendingum íslensku og við erum að bregðast við því," bætir Þóra Björk við og segir þetta svar íslenskuskorar við kröfum fjölmenningarsamfélagsins. Aðspurð hvort skortur sé á íslenskukennurum fyrir útlendinga segir Þóra Björk svo vera, sérstaklega menntuðum kennurum. Með þessu námskeiði vilji skorin reyna að auka menntun kennaranna og gera kennsluna þannig markvissari. Skráning í námskeiðið er ekki hafin og því liggur ekki fyrir hversu margir munu sitja það en Þóra á von á góðri þátttöku í ljósi þess að nemendur óskuðu eftir því að námskeiðið yrði sett á laggirnar. Sem fyrr segir stendur skorin og félag íslenskunema fyrir íslenskuhátíð í dag í tilefni dags íslenskrar tungu. Þar verða námskeiðin kynnt, menntamálaráðherra flytur ávarp og rithöfundar, fræðimenn og nemar flytja erindi um tunguna. Hátíðin hefst klukkan 16 og verður í stofu 201 í Árnagarði.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira