Orka til álvers í Helguvík gæti verið í uppnámi 15. nóvember 2007 19:03
Óvíst er með orku til álvers í Helguvík eftir að Grindvíkingar ákváðu að nýta orku í bæjarlandinu í heimabyggð. Vogar, Hafnarfjörður og Grindavík ætla að stofna félag til að tryggja að orkulindir innan sveitarfélaganna verði alfarið í þeirra eigu. Talsmenn Hitaveitu Suðurnesja segja að fyrirtækið hafi rannsóknarleyfi á þeim svæðum á Reykjanesi þar sem helstu orkulindir sveitarfélaganna þriggja eru. Spurningar hafa vaknað hvort sveitarfélögin þrjú séu með þessu að stofna nýtt orkufyrirtæki á svæðinu. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði segir að svo sé ekki. Markmiðið sé að fyrirtækin sameinist um sameiginlega hagsmuni varðandi orkulindir sínar. Framtíðarorkulindir í sveitarfélögnum þremur eru við Trölladyngju, við Sandfell og í Krísuvík. Ætla má að væntanlegir kaupendur orku af því svæði þurfi að tilgreina hvar þeir hyggist nýta orku auk þess sem liggja þarf fyrir hvernig framkvæmt verður í tengslum við virkjanir. Grindvíkingar segjast standa frammi fyrir breyttum aðstæðum vegna samdráttar í þorskkvóta og því sé áherslan á orkumálin í brennidepli. Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri í Grindavík, segir að orka sem verði virkjuð í landi Grindavíkur verði notuð þar. Sú fullyrðing gæti gefið í skyn að þurrð verði á orku til starfsemi væntanlegs álvers í Helguvík, sem er í landi Reykjanesbæjar. Árni Sigfússon bæjarstjóri þar sagði í samtali við Stöð 2 að ekkert benti til þess að álver þar yrði í uppnámi. Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, sagði að stærstur hluti þeirra orku sem fari til álversins í Helguvík komi úr landi Reykjanesbæjar í fyrsta áfanga. Hluti komi vissulega úr Svartsengi sem er í landi Grindavíkur. Fundur sé með Grindvíkingum á á þriðjudag og þá skýrist þessi mál frekar.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Sjá meira