Refsing árásarmanns þyngd um sex mánuði Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. nóvember 2007 20:00
Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í níu mánuði en þar af voru sex mánuðir skilorðsbundnir til þriggja ára. Maðurinn var einnig ákærður fyrir tilraun til nauðgunar. Í frumskýrslu lögreglunnar sem tekin var af konunni er haft eftir henni að hún hafi verið að koma heim af dansleik þegar fyrrverandi eiginmaður hennar og barnsfaðir, ákærði í málinu, hafi hringt dyrabjöllu og hún boðið honum inn. Að sögn konunnar hafi ákærði verið rólegur, þau ræðst við í sófa í stofunni og hann viljað hafa samfarir við hana. Hún hafi hafnað þeirri ósk, hann reiðst, tekið taubelti af buxum sínum, sett það um háls hennar og hert að. Í framhaldi hafi hann klætt þau bæði úr buxum og nærbuxum og reynt að nauðga henni, fyrst með því að leggjast ofan á hana í sófanum, en síðan með því að draga hana með beltinu niður á stofugólf og leggjast ofan á hana þar. Kvaðst konan hafa náð að bíta ákærða. Hún sagði hann hafa haldið beltinu um háls hennar í 20-30 mínútur, en ekki náð að eiga við hana samræði. Hann hafi síðan losað beltið og farið á brott. Hvorki héraðsdómi né Hæstarétti þótti ákæruvaldinu hafa tekist að færa sönnur á það að maðurinn hafi nauðgað konunni. Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Ingibjörg Benediktsdóttir og Markús Sigurbjörnsson dæmdu málið í Hæstarétti. Ingibjörg skilaði sératkvæði og sagðist ósammála niðurstöðu meirihluta dómenda um að sýkna ákærða af tilraun til nauðgunar.
Mest lesið Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Erlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Innlent Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com Innlent Leiðtogi í hvítrússnesku andspyrnuhreyfingunni frjáls Erlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Fleiri fréttir Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Sjá meira