Innlent

Fjögurra ára stúlka vitni að heimilisofbeldi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Maðurinn fékk fimm mánaða dóm.
Maðurinn fékk fimm mánaða dóm.

Tuttugu og sex ára gamall karlmaður var dæmdur í fimm mánaða fangelsi Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir líkamsárás á barnsmóður sína í desember í fyrra.

Í dómnum kemur fram að árásin hafi átt sér stað þegar konan var að sækja fjögurra ára gamla dóttur sína til mannsins sem hafði þá dvalið hjá honum. Tilefni árásarinnar hafi verið að konan sakað manninn um að vera undir áhrifum fíkniefna á meðan dóttir þeirra var í umsjá hans. Hafi maðurinn þá reiðst. Hann hafi tekið konuna hálstaki og hrint henni upp að skáp í íbúð þeirra, slegið hana svo hnefahöggi í andlit og slegið hana í bak og í öxl þegar hún var á leið út úr íbúð mannsins. Konan hlaut talsverða áverka. Dómurinn lítur svo á „að konan hafi beðið alvarlegt sálartjón af árás ákærða, ekki síst vegna þess að dóttir þeirra horfði upp á atlögu föður síns gegn móður."

Sami maður var dæmdur fyrir að hrifsa veski úr höndum þriggja kvenna með nokkurra daga millibili í mars og apríl 2006. Tvær af þessum konum voru á sjötugsaldri. Þá var hann einnig dæmdur fyrir að hafa í vörslu sinni stolna fartölvu. Maðurinn játaði þessi brot sín en neitaði sök í máli fyrrverandi eiginkonu sinnar.

Auk fimm mánaða fangelsis var maðurinn dæmdur til að greiða konunni 300 þúsund krónur í miskabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×