Áform um a.m.k. tvær kílsilverksmiðjur á landinu 15. nóvember 2007 15:11 Frá Helguvík. MYND/Pjetur
Hugmyndir eru uppi um að reisa að minnsta kosti tvær kísilhreinsunarverskmiðjur hér á landi, aðra í Þorlákhsöfn en hina í Helguvík. Enn á þó eftir að ganga frá samningum um orkusölu vegna þeirra. Fram hefur komið í fréttum að Landsvirkjun hyggist ekki selja orku til nýrra álvera á suðvesturhorninu en ætli að ræða við fyrirtæki sem hafa hug á að reisa netþjónabú eða hreinsunarverskmiðju fyrir kísil sem notaður verður í sólarrafhlöður. Fréttastofa Útvarps greindi frá því í vikunni að Landsvirkjun ætti að líkindum í viðræðum við bandarískt fyrirtæki, Hemlock Semiconductor Corp, um að selja því orku í kísihreinsunarverksmiðju sem líklegast myndi rísa í Þorlákshöfn. Þar fengju allt að 500 manns vinnu. Annað félag, Tomahawk Development, sem er í eigu danskra og íslenskra aðila, hefur einnig hug á að reisa kísilverksmiðju á Íslandi og hefur þegar tryggt sér lóð undir starfsemina. Eftir því sem fram kemur í matsskýrslu sem Skipulagsstofnun hefur samþykkt með skilyrðum, er ætlunin að framleiða þar kísil og stendur til að stofna nýtt íslenskt fyrirtæki, Icelandic Silicon Corporation, sem reka mun verksmiðjuna. Áætlanir fyrirtækisins gera ráð fyrir að framleiðslan verði þróuð smám saman þannig að í framhaldinu verði farið í framleiðslu á mjög hreinum kísil fyrir sólarrafhlöður og að lokum í framleiðslu á slíkum rafhlöðum. Þær á að selja til Þýskaland, Suður-Evrópu og Bandaríkjanna. Áætlanir fyrirtækisins gera ráð fyrir að 50 þúsund tonn af kísil verði unnin í verksmiðjunni á ári og að þar muni starfa um 90 manns. Fyrirtækið á nú í viðræðum við Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja um orkukaup vegna verksmiðjunnar, segir Magnús Garðarsson, einn af eigendum Tomahawk Development. Félagið vinnur enn fremur að frummatsskýrslu um umhverfisáhrif vegna framkvæmdanna og reiknar Magnús með að ef allt gangi að óskum geti framkvæmdir við verksmiðjuna hafist á næsta ári. Verksmiðjan verði svo komin í full afköst haustið 2010. Tomahawk skortir hins vegar losunarheimildir vegna gróðurhúsalofttegunda á tímabilinu 2008 til 2012 en umhverfisráðuneytið úthlutaði þeim nú í haust. Tomahawk sótti um losunarheimildir en að mati nefndar á vegum umhverfisráðuneytisins voru ekki forsendur til að úthluta kvóta til félagsins þar sem mikil óvissa væri enn um framgang verksins, s.s. um orkuöflun og mat á umhverfisáhrifum. Var því úthlutun til þess sett í biðstöðu en henni ekki hafnað. Aðeins fyrirtæki sem þegar eru starfandi fengu losunarkvóta í haust. „Við erum að vinna að því bæta við framleiðslu á metanóli. Hún færi þannig fram að koltvísýringur frá verksmiðjunni yrði notaður til að framleiða metanól í eldsneyti. Þá væri ekki þörf á útblásturskvóta," segir Magnús.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira