Skýrarir reglur til þess að meta veikindi ökumanna 15. nóvember 2007 14:42 Ágúst Mogensen, forstöðumaður Rannsóknarnefndar umferðarslysa.
Rannsóknarnefnd umferðarslysa vill að yfirvöld setji sérstækar reglur fyrir lækna til þess að þeir geti komið í veg fyrir að fólk sem er langt leitt af sjúkdómum eða af notkun tiltekinna lyfja setjist undir stýri.Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar vegna málsins kemur fram að frá árinu 1999 hafi orðið 13 dauðsföll í umferðinni þar sem veikindi ökumanna eru talin meginorsök slyss. Vill nefndin að umferðarlög verði endurskoðuð með tillit til þess hvaða áhrif sjúkdómar, nauðsynleg lyfjanotkun og öldrun hafa sannalega á ökuhæfni.Ágúst Mogensen, forstöðumaður Rannsóknarnefndar umferðarslysa, bendir á að samgönguráðherra og landlækni sé heimil í sameiningu að endurskoða þessi mál samkvæmt lögum.Hann segir að í lögum og reglum séu þær heilsufarskröfur sem gerðar séu til ökumanna. „Hins vegar vantar upp á klínískar leiðbeiningar til lækna um það hvenær sé rétt að fólk keyri ekki lengur," segir Ágúst. Hann bendir enn fremur á að af þeim 13 tilvikum, þar sem rekja megi dauðsföll í umferðinni til veikinda ökumanna, hafi ellefu ökumannanna verið í meðferð hjá lækni. „Svo eru nokkur tilvik á undanförnum árum þar sem fólk hefur látist undir stýri. Í sumum þeirra var fólkið langt leitt af alvarlegum sjúkdómum," segir Ágúst.Ágúst segir ljóst að ekki verði hægt að koma í veg fyrir öll slys af þessu tagi en menn hljóti að velta fyrir sér hvar sé hægt að gera betur. Þekkingin á sjúkdómum og lyfjum sé svo sannarlega fyrir fyrir hendi.Fólk taki meðvitaða ákvörðun um að hætta að akaÁgúst bendir enn fremur á að leiðbeiningar sem þessar séu til í Kanada. Landlæknisembættið hafi tekið þær upp en þær hafi ekki lagagildi. „Við viljum því nákvæmar útlistanir á því hvenær læknir eigi að grípa inn í og að þær útlistanir hafi eitthvert vægi," segir Ágúst. Hann segir að rannsóknarnefndin vilji með skýrslu sinni einnig vekja fólk til umhugsunar þannig að það taki jafnvel meðvitaða ákvörðun um að hætta að aka vegna veikinda, lyfjanotkunar eða aldurs.Rannsóknarnefndin hefur þegar sent skýrsluna til samgönguráðuneytisins og landlæknis ásamt bréfi og segir Ágúst að nefndin muni fylgjast með því hvort eitthvað verði gert í málunum.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira