Upplýsingar sem fengust eftir fjölmiðlaumfjöllun voru ástæða húsleitar 15. nóvember 2007 13:53 Húsleit var gerð hjá Bónus og Krónunni í dag.
Samkeppniseftirlitið segir að upplýsingar frá einstaklingum og fyrirtækjum sem bárust í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um matvörumarkaðinn, nú um daginn, hafi leitt til þess að húsleit var gerð hjá tveimur aðilum í smásölu og þremur aðilum í innflutningi og heildsölu í dag. „Í fréttatilkynningu 1. nóvember sl. hvatti Samkeppniseftirlitið þá sem teldu sig hafa upplýsingar um brot á samkeppnislögum til þess að koma þeim upplýsingum á framfæri við eftirlitið og hafa allmargir brugðist við þeirri hvatningu. Rannsókn sú sem nú er hafin beinist einkum að ætluðum brotum á 10. gr. samkeppnislaga, þ.e. hugsanlegu ólögmætu samráði smásöluaðila og birgja. Kemur rannsóknin til viðbótar við aðrar athuganir sem nú standa yfir og áður hafa verið kynntar opinberlega. Samkeppniseftirlitið mun hraða nýhafinni rannsókn eftir því sem kostur er, en ljóst er að athugunin er viðamikil og að nokkurn tíma mun taka að greina þau gögn sem aflað hefur verið," segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu. Liðsinni fyrirtækja hefur áhrif á málsmeðferð„Rétt er að vekja athygli á því að þýðingu hefur fyrir skjóta úrlausn málsins hvort fyrirtæki eða einstaklingar ákveða að liðsinna eftirlitinu við rannsókn þess. Ef um brot er að ræða getur Samkeppniseftirlitið samkvæmt lögum fallið frá sektarákvörðun hafi fyrirtæki verið fyrst til að láta því í té upplýsingar eða gögn vegna ólögmæts samráðs sem geta leitt til sönnunar á broti. Einnig er heimilt að lækka sektir ef fyrirtæki liðsinna eftirlitinu með því að veita mikilvæg sönnunargögn. Þá getur Samkeppniseftirlitið ákveðið að kæra ekki til lögreglu hugsanleg brot einstaklinga sem upplýsa um þau og liðsinna við rannsókn. Fyrirtæki og einstaklingar sem hugsanlega hafa tekið þátt í ólögmætu samráði hafa því skýran hag af því að liðsinna eftirlitinu, en það getur á móti leitt til skjótari málsmeðferðar," samkvæmt tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu," segir ennfremur í tilkynningunni Vísir.is hefur ekki náð tali af Páli Gunnari Pálssyni, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, vegna rannsóknarinnar.
Tengdar fréttir Húsleit hjá Bónus og Krónunni Samkeppniseftirlitið hefur í morgun gert húsleit á skrifstofum Bónuss og Krónunnar. 15. nóvember 2007 11:00 Viljum gjarnan hreinsa okkur af ásökunum um verðsamráð „Við viljum gjarnan hreinsa okkur af þeim ásökunum sem hafa verið bornar á okkur," segir Finnur Árnason, forstjóri Haga, spurður um afstöðu sína til húsleitarinnar sem starfsmenn Samkeppniseftirlitsins gerðu hjá Bónus í morgun. 15. nóvember 2007 11:31 Kaupás fagnar húsleit Samkeppniseftirlitsins Forsvarsmenn Kaupáss segja húsleit Samkeppniseftirlitsins vera fagnaðarefni. Í tilkynningu frá félaginu segir að það hafi „ítrekað lýst því yfir á opinberum vettvangi að það óskaði eftir opinberri rannsókn hið allra fyrsta til þess að hreinsa stjórnendur Kaupáss og Krónunnar af hvers kyns dylgjum um verðsamráð eða óeðlilega viðskiptahætti í þeirri miklu samkeppni sem ríkir á íslenskum matvörumarkaði.“ 15. nóvember 2007 12:15 Formaður viðskiptanefndar fagnar rannsókn Samkeppniseftirlitsins Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður viðskiptanefndar Alþingis, fagnar því að Samkeppniseftirlitið skoði meint samráð matvöruverslana. Eins og greint hefur verið frá í dag gerði Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Bónus og Krónunni í morgun. 15. nóvember 2007 14:56 Fulltrúar neytenda: Fagna aðgerðum Samkeppniseftirlitsins „Ég fagna því að Samkeppniseftirlitið beiti þeim heimildum sem það hefur til að stunda virkt eftirlit," sagði Gísli Tryggvason talsmaður neytenda, þegar Vísir hafði samband við hann vegna húsleitarinnar sem gerð var hjá Bónus og Krónunni í morgun. 15. nóvember 2007 11:38 ASÍ breytir verklagi sínu í verðkönnunum Alþýðusambandið hefur breytt verklagi sínu í verðkönnunum í kjölfar alvarlegra ásakana um að starfsmenn verslana hafi reynt að blekkja og villa um fyrir verðkönnunarfólki. 15. nóvember 2007 12:49 Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira
Húsleit hjá Bónus og Krónunni Samkeppniseftirlitið hefur í morgun gert húsleit á skrifstofum Bónuss og Krónunnar. 15. nóvember 2007 11:00
Viljum gjarnan hreinsa okkur af ásökunum um verðsamráð „Við viljum gjarnan hreinsa okkur af þeim ásökunum sem hafa verið bornar á okkur," segir Finnur Árnason, forstjóri Haga, spurður um afstöðu sína til húsleitarinnar sem starfsmenn Samkeppniseftirlitsins gerðu hjá Bónus í morgun. 15. nóvember 2007 11:31
Kaupás fagnar húsleit Samkeppniseftirlitsins Forsvarsmenn Kaupáss segja húsleit Samkeppniseftirlitsins vera fagnaðarefni. Í tilkynningu frá félaginu segir að það hafi „ítrekað lýst því yfir á opinberum vettvangi að það óskaði eftir opinberri rannsókn hið allra fyrsta til þess að hreinsa stjórnendur Kaupáss og Krónunnar af hvers kyns dylgjum um verðsamráð eða óeðlilega viðskiptahætti í þeirri miklu samkeppni sem ríkir á íslenskum matvörumarkaði.“ 15. nóvember 2007 12:15
Formaður viðskiptanefndar fagnar rannsókn Samkeppniseftirlitsins Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður viðskiptanefndar Alþingis, fagnar því að Samkeppniseftirlitið skoði meint samráð matvöruverslana. Eins og greint hefur verið frá í dag gerði Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Bónus og Krónunni í morgun. 15. nóvember 2007 14:56
Fulltrúar neytenda: Fagna aðgerðum Samkeppniseftirlitsins „Ég fagna því að Samkeppniseftirlitið beiti þeim heimildum sem það hefur til að stunda virkt eftirlit," sagði Gísli Tryggvason talsmaður neytenda, þegar Vísir hafði samband við hann vegna húsleitarinnar sem gerð var hjá Bónus og Krónunni í morgun. 15. nóvember 2007 11:38
ASÍ breytir verklagi sínu í verðkönnunum Alþýðusambandið hefur breytt verklagi sínu í verðkönnunum í kjölfar alvarlegra ásakana um að starfsmenn verslana hafi reynt að blekkja og villa um fyrir verðkönnunarfólki. 15. nóvember 2007 12:49