Innlent

Horfir til betri vegar í Hvalfjarðargöngum

MYND/Pjetur

Einungis eitt prósent ökumanna sem fóru um Hvalfjarðargöng frá mánudegi til miðvikudags reyndist hafa ekið of hratt.

Alls voru 59 ökumenn myndaðir við hraðakstur í göngunum á tæplega 46 klukkustundum en alls fóru rúmlega 4200 bílar um göngin á þeim tíma. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 83 kílómetrar á klukkustund en þarna er 70 kílómetra hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 97. Lögregla hefur áður mælt hraða ökumanna í Hvalfjarðargöngunum og þá reyndust um fjögur prósent hafa ekið of hratt. Segir lögregla að ef tekið sé mið af nýjustu upplýsingum virðist horfa til betri vegar í Hvalfjarðargöngum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×