Innlent

ASÍ breytir verklagi sínu í verðkönnunum

Alþýðusambandið hefur breytt verklagi sínu í verðkönnunum í kjölfar alvarlegra ásakana um að starfsmenn verslana hafi reynt að blekkja og villa um fyrir verðkönnunarfólki. Í könnun sambandsins í fyrradag var farið í átta verslanir, keypt inn og verð síðan borin saman af kassakvittunum. Mestur reyndist verðmunurinn vera á borðsalti eða 120 prósent.

Farið var inn í átta matvöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu kl. 16 síðast liðinn þriðjudag. Verðtökufólkið gerði ekki grein fyrir sér í verslununum heldur keypti inn eins og hver annar neytandi og greiddi fyrir vörurnar. Kassastrimlarnir voru síðan notaðir til að bera saman verð á vörum milli verslana.

Á undanförnum árum hefur ASÍ gert verðkannanir í verslunum og þá hefur verslunarstjórum verið tilkynnt um komu verðtökufólksins sem síðan hefur tekið niður verð af hillumiðum verslana. Ástæðan fyrir því að verklagið er með öðrum hætti nú er sú að því er segir á vef ASÍ að fram hafa komið alvarlegar ásakanir frá fyrrum starfsmönnum matvöruverslana um að reynt hafi verið að blekkja og villa um fyrir verðtökufólki.

Samkvæmt niðurstöðum verðkönnunarinnar var Bónus oftast með lægsta verðið. Mesti verðmunur í könnuninni var á borðsalti frá Kötlu eða 120 prósent, Það var ódýrast í Bónus þar sem það kostaði 40 krónur en dýrast í Nóatúni á 88 kr. Tæplega 90 prósenta munur var á Egils Mix (2 lítra). Í Bónus kostaði flaskan 96 krónur en dýrust var hún í Nóatúni, á 180 krónur. Að verðkönnuninni lokinn færði ASÍ Mæðrastyrksnefnd matvörurnar að gjöf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×