Viljum gjarnan hreinsa okkur af ásökunum um verðsamráð 15. nóvember 2007 11:31 Finnur Árnason, forstjóri Haga. „
Við viljum gjarnan hreinsa okkur af þeim ásökunum sem hafa verið bornar á okkur," segir Finnur Árnason, forstjóri Haga, spurður um afstöðu sína til húsleitarinnar sem starfsmenn Samkeppniseftirlitsins gerðu hjá Bónus í morgun. „Við erum sannfærðir um að rannsókn mun ekki leiða neitt óeðlilegt í ljós," bætir hann við. Að öðru leyti vísaði Finnur á fréttatilkynningu sem Bónus sendi frá sér í morgun en þar kemur meðal annars fram að Bónus fagni því að Samkeppniseftirlitið hafi hafið rannsókn á þeim alvarlegu ásökunum um verðsamráð sem hafa komið fram. Þetta sé í samræmi við þá ósk sem Hagar hf., rekstraraðili Bónuss, setti fram í bréfi til Samkeppniseftirlitsins dagsett hinn 1. nóvember síðastliðinn. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir félagið ekkert hafa fela. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, sagði við fréttastofu nú á tólfta tímanum að einn maður frá Samkeppniseftirlitinu væri enn á skriftstofum fyrirtækisins við að afrita gögn úr tölvum. Aðrir starfsmenn eftirlitsins hefður haft á brott með sér hálfan pappakassa af gögnum. Aðspurður hvaða skýringar forsvarsmenn Bónuss hefðu fengið á húsleitinni sagði Guðmundur að hún hefði komið í framhaldi af umræðum í fjölmiðlum undanfarnar vikur um meint samráð á matvörumarkaði. „Við höfum ekkert að fela og við óskuðum eftir því að eftirlitið rannsakaði málið til þess að hægt væri að hreinsa okkur af þessum ásökunum," sagði Guðmundur Marteinsson. Því hafi húsleitin í sjálfu sér ekki komið á óvart. Ekki hefur náðst í forsvarsmenn Kaupáss vegna húsleitarinnar.
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Nánast búin með stafrófið Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Fleiri fréttir Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Sjá meira